Brekkan að baki! |
Góð mæting, - um fjörutíu manns.
Veður heldur hráslagalegt og kólnandi.
Lestin stöðvaðist á Lágheiði í löngu brekkunni þar sem snjór og hálka varð stóra bílnum ofviða. Pétur hélt áfram yfir á CRV jepplingnum sem lét sér hvergi bregða en hinir fjallabaksleið til Akureyrar. Ólafsfirðingar mættu vel en vegna asans í hríðinni varð kassi eftir í stóra bílnum og því var blóðfita ekki mæld. Boð um það á Dalvík á morgun.