Námskeið SÍBS hefjast mánudaginn 16. janúar. Annars vegar verður boðið upp á þrjú HAM-námskeið (hugræn atferlismeðferð) sem eru aðlöguð útgáfa af námskeiðum sem notuð eru í endurhæfingu á Reykjalundi. Hins vegar verður boðið upp á lífsstílsnámskeiðin „Hollara mataræði“ og „Betra líf og heilsa, lífsstílsþjálfun“. Námskeiðin eru kennd af færustu sérfræðingum á hverju sviði.
Dagskrá vorannar:
- Betra líf og heilsa, lífsstílsþjálfun (16.01 - 08.05) er 16 vikna lífsstílsþjálfun með áherslu á hreyfingu og mataræði, vikulegir hópfundir, heilsufarsmælingar, stuðningur og utanumhald í gegnum SidekickHealth.
- Hvað er hollt og hvað ekki? (18.01 - 25.01) þar sem farið er yfir ráðleggingar um mataræði og hvernig hægt er að minnka áhættu á lífsstílssjúkdómum.
- HAM við þunglyndi og kvíða (18.01 - 08.03) þar sem farið er yfir leiðir hugrænnar atferlismeðferðar til að takast á við þunglyndi og kvíða.
- HAM við krónískum verkjum (07.02 - 14.03) þar sem farið er yfir leiðir hugrænnar atferlismeðferðar til að rjúfa vítahring verkja.
- HAM byggð á núvitund (15.03 - 10.05) þar sem farið er yfir leiðir hugrænnar atferlismeðferðar og núvitundar til að bæta líðan og viðhalda góðu jafnvægi
Miðaeigendur í Happdrætti SÍBS og félagsmenn í aðildarfélögum SÍBS og ÖBÍ fá 3.000 kr. afslátt af námskeiðunum.