Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna stendur fyrir fræðsluerindi um "Erfðafræði hjartagalla" miðvikudaginn 21. september kl. 20 í SÍBS húsinu Síðumúla 6, 2. hæð (lyfta). Þar mun Hilma Hólm hjartalæknir hjá Íslenskri erfðagreiningu og Landspítalanum fjalla um rannsóknir á erfðum hjartagalla.
Umræðuefni kvöldsins er:
- Hvað er vitað um erfðafræðilegar orsakir hjartagalla?
- Hvernig erfast líkur á hjartagöllum?
- Framþróun í rannsóknum á erfðafræði hjartagalla.
- Aðkoma Íslenskrar erfðagreiningar að rannsóknum á erfðafræði hjartagalla.
Allir velkomnir og heitt á könnunni!