Alþjóðlegi hjartadagurinn (World heart day) er sunnudaginn 29. september. Að því tilefni verður Hjartadagshlaupið sunnudaginn 25. september kl. 10 frá Kópavogsvelli. Hægt er að skrá sig á hlaup.is eða á staðnum, þátttaka er ókeypis. Hjartadagsgangan er fimmtudaginn 29. september kl. 17:30 en gengið er frá gömlu rafstöðinni í Elliðaárdal.
Markmið hjartadagsins, sem yfir 100 þjóðir taka þátt í um allan heim, er að auka vitund og þekkingu almennings á ógnum hjarta- og æðasjúkdóma og leggja áherslu á heilbrigða lífshætti. Á Íslandi sameinast Hjartavernd, Hjartaheill, Neistinn og Heilaheill um að halda daginn.
Þema hjartadagsins í ár er hjartvænt umhverfi. Heilbrigður lífsstíll er mikilvægasta forvörn gegn hjarta- og æðasjúkdómum. Á síðustu áratugum hefur margt breyst til batnaðar í samfélagi okkar og umhverfi, okkur hefur verið gert auðveldara að lifa heilsusamlegu lífi. Hjólastígar, göngustígar, almenn útivistarsvæði, takmarkanir á reykingum og ýmislegt fleira hafa skilað sér til þjóðarinnar í bættri heilsu. Nánari upplýsingar um Alþjóðlega Hjartadaginn má finna á heimasíðu Hjartaheilla.