Sambandsþingi SÍBS 2016 sem fyrirhugað var 29. október hefur verið frestað um viku vegna alþingiskosninga og verður því haldið laugardaginn 5. nóvember 2016 kl. 10 –17 að Reykjalundi í Mosfellsbæ. Sambandsþing eru haldin annað hvert ár samkvæmt lögum SÍBS.
Á þinginu verða m.a. lagðar fram skýrslur aðildarfélaga, ársreikningar auk þess sem aðildarfélögin tilnefna fulltrúa sína í stjórn og kosinn verður formaður og varaformaður stjórnar auk tveggja varamanna.
Samtals eru yfir 5.000 félagar í aðildarfélögum SÍBS og þingfulltrúar þeirra eru 87.