Föstudaginn 1. febrúar var efnt til veislu í Múlalundi, vinnustofu SÍBS. Starfsmenn og gestir gæddu sér á úrvals þorramat í hádeginu, þar sem var að finna alla þá rétti sem tilheyra góðu þorrablóti, súrt hvalrengi meðtalið sem nú er aftur fáanlegt.
Starfs- og stjórnarmenn SÍBS voru meðal gesta og gerðu veisluföngunum góð skil.
Pétur Bjarnason tók nokkur þorralög á harmoniku í tilefni dagsins.
Stjórnarmenn SÍBS, Auður, Dagný og Björn Ólafur |