SÍBS í samstarfi við Ferðafélag barnanna bjóða upp á gönguferðir á sunnudögum í júní fyrir alla fjölskylduna.
Fararstjórar frá Ferðafélagi barnanna leiða för og líkt og í öllum ferðum Ferðafélags barnanna er gengið á forsendum barnanna, farið rólega og notið þess að vera úti í náttúrunni. Gott er að vera í göngu- eða íþróttafatnaði, göngu- eða íþróttaskóm og klæða sig eftir veðri og taka með sér nesti í bakpoka. Boðið verður upp á glaðning í síðustu göngunni. Nánari upplýsingar má finna á Facebook síðu SÍBS og FÍ.
Dagskráin er sem hér segir:
05. júní kl. 11 – 12.30 Nauthóll – gengið um í Öskjuhlíðinni
12. júní kl. 11 - 12:30 Bílastæði við Rauðhóla - ratleikur í reit FÍ um Heiðmörk
19. júní kl. 11 – 12.30 Árbæjarlaug – gengið um í Elliðaárdal
26. júní kl. 11 – 12.30 Grótta – gengið um í fjörunni við Gróttu