Árbæjarútibú Landsbanka Íslands fagnar 40 ára afmæli sínu í dag. Af því tilefni fékk SÍBS að gjöf frá Landsbankanum tvær milljónir króna, sem formaður og framkvæmdastjóri veittu viðtöku.
Það er skemmtilegt þegar afmælisbörn gefa gjafir í tilefni tímamóta sinna, en SÍBS á líka afmæli 2008, því í haust verða 70 ár liðin frá stofnun samtakanna.
Stjórn SÍBS flytur Landsbankanum alúðarþakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf sem mun koma sér vel.
Smellið á myndirnar fyrir stærri mynd.