Reykjalundarnámskeið SÍBS á vorönn 2016 hefjast 18. janúar. Námskeiðin eru aðlöguð útgáfa af námskeiðum sem notuð eru í meðferð á Reykjalundi.
Eftirfarandi námskeið fara af stað í janúar:
-
Streita og jafnvægi í daglegu lífi: Markmiðið er að fræða þátttakendur um streitu almennt og hvernig hún hefur áhrif á daglegt líf. Hefst mánudaginn 18. janúar.
-
Viltu kynnast HAM? Á námskeiðinu er farið yfir helstu kenningar og verkfæri í hugrænni atferlismeðferð (HAM). Hefst þriðjudaginn 19. janúar.
-
Að takast á við króníska verki, fræðsla: Markmiðið er að fræða almennt um stoðkerfisverki og eigin áhrifamátt til bættrar heilsu og aukinna lífsgæða. Hefst miðvikudaginn 20. janúar.
-
Hollara mataræði: Á námskeiðinu er farið yfir leiðbeiningar um hollt mataræði og tengsl við heilbrigði. Hefst fimmtudaginn 21. janúar.
Námskeiðin eru kennd af okkar færustu sérfræðingum á hverju sviði og þú getur treyst faglegu innihaldi þeirra.