Út er komið októberhefti SÍBS-blaðsins, sem fjallar um næringu og heilbrigði.
Ofurfæði og aðrar skyndilausnir hafa verið ofarlega í umræðunni, sem og erfðabreytt matvæli. Í blaðinu er leitast við að varpa ljósi á hvað er rétt og rangt í þessu sambandi. Þá er fjallað um samhengi næringar og sjúkdóma, sem og mögulegar hættur samfara notkun plastumbúða um matvæli.
Eftir stendur að næring hefur ótvíræð áhrif á heilbrigði, en mikilvægast er að byrja á grundvallaratriðum mataræðis í stað þess að kasta sér af fullum krafti á tískustraumana.
Meðal efnis í blaðinu er: Næring og hjartasjúkdómar, næring og krabbamein, erfðabreytt matvæli, greinar um ofurfæði og margt fleira. Blaðið má skoða hér.