Aðalfundur Vífils, félags einstaklinga með kæfisvefn og aðrar svefnháðar öndunartruflanir, verður haldinn þriðjudaginn 18. maí, 2010 kl. 20:00 í SÍBS húsinu Síðumúla 6, gengið inn frá bílastæði bakdyramegin.
Aðalfundarstörf samkvæmt lögum Vífils.
Fræðsluerindi: Ólöf Ámundadóttir sjúkraþjálfi verður með erindi um hreyfingu.
Kaffiveitingar: verð kr. 500,- Kaffispjall að venju.
Stjórn Vífils.