Á fundi Lyfjagreiðslunefndar þann 26. ágúst 2008 voru ákveðnar nýjar reglur um smásöluálagningu lyfja sem taka gildi á árinu 2009.
Markmið breytingarinnar:
- Leitast við að hafa smásöluálagningu á hverri pakkningu í samræmi við kostnað við afgreiðslu.
- Einfalda álagningarkerfið með fækkun álagningarflokka.
- Hafa álagningarkerfið svipað og á hinum Norðurlöndunum.
Með auknu vægi krónutöluálagningar þá hafa breytingar á heildsöluverði minni áhrif á smásöluálagningu og smásöluverð.
- Það skilyrði var sett að heildarverð lyfja í smásölu hækki ekki við formbreytinguna.
- Verð mun breytast mismunandi eftir verðflokkum.
- Greiðsluþátttaka Tryggingarstofnunar mun sennilega lækka í óbreyttu greiðsluþátttökukerfi.
- Krónutala álagningarinnar verður endurskoðuð árlega með tilliti til kostnaðarþróunar. 80% launavísitala 20% byggingarvísitala