Eitt samfélag fyrir alla – Saga ÖBÍ í 50 ár
Þann 5. maí 2011 voru 50 ár liðin frá stofnun Öryrkjabandalags Íslands. Afar margt hefur breyst á þessum tíma, en þó má segja að markmiðin hafi ávallt verið hin sömu, að vinna að samfélagslegu réttlæti, bættum lífsgæðum og kjörum óháð líkamlegu eða andlegu atgervi einstaklinga. Í myndinni er stiklað á stóru í viðburðaríkri sögu bandalagsins með frásögnum fjölda fólks sem lagt hefur baráttunni lið frá upphafi til dagsins í dag.
- Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Ólafur Sölvi Pálsson.
- Framleiðandi: Epos kvikmyndagerð fyrir Öryrkjabandalag Íslands