1. Lífstíll og heilsa, offita, mataræði og hreyfing
Áhrif lífstíls á heilsufar manna hafa verið þekkt frá örófi alda. Lækningar hafa þó löngum snúist mest um aðgerðir og lyf. Á þeim sviðum hafa orðið gríðarlegar framfarir á undanförnum áratugum en með breyttum samfélagslegum viðhorfum hefur framþróun læknavísindanna einmitt leitt til þess að áherslan á heilbrigt líferni vegur æ þyngra í baráttunni við hvers kyns sjúkdóma sem á okkur herja.
- Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Aðalgeir Gestur Vignisson.
- Framleiðandi: Epos kvikmyndagerð fyrir SÍBS, Samtök sykursjúkra og Geðhjálp, 2019.