Reykjalundur 80 ára

Reykjalundur 80 ára

1945–2025

Haustið 2025 kemur út bókin Saga Reykjalundar sem fjallar í máli og myndum um tilurð og starfsemi þessarar merku stofnunar allt frá tímum berklana og fram á okkar daga. Reykjalundur hefur hjálpað þúsundum landsmanna aftur út í lífið eftir sjúkdóma og slys.

Nú gefst færi á að kaupa bókina í forsölu og fá nafn sitt skráð í heillaóskaskrá fremst í bókinni.

Alafoss Hospital

Upphaflega fór starf Reykjalundar fram í bröggum sem voru reistir í seinni heimsstyrjöld undir hersjúkrahúsið „Alafoss Hospital“. Húsunum fylgdu vatnslagnir, holræsi og ýmis konar aðstaða sem komu sér vel fyrir hina nýju starfsemi.

Reykjalundur um 1960

Á fyrstu 15 árum starfsemi Vinnuheimilisins að Reykjalundi (V.A.R.) reis hvert húsið af öðru, bæði stór og smá. Hér sjást byggingarnar um 1960, nokkrir braggar eru enn til staðar.

Sími úr plasti

Leikföng, sem framleidd voru á Reykjalundi, voru afar vinsæl, meðal annars vörubílar úr tré og brúður í skartklæðum. Síðar kom plastiðjan til sögunnar og þá jókst fjölbreytnin í framleiðslunni.

Jólasería

Bjölluljósin, jólaseríurnar frá Reykjalundi, voru kærkomin í stað kertanna sem höfðu valdið mörgum eldsvoðum á heimilum um jólin. Jólaseríurnar voru meðal fjölmargra vinsælla vara sem framleiddar voru á Reykjalundi.

LEGO hús

Mjög gott samstarf var milli Reykjalundar og LEGO í Danmörku. Reykjalundarkubbarnir voru vinsælar jólagjafir um langt árabil og eru enn víða til í dótakössum.

Plastvélasalur

Plastiðjan á Reykjalundi kom til sögunnar á sjötta áratugnum og varð með tímanum öflugur stuðningur við endurhæfingarstarfið þar. Rörin frá Reykjalundi voru notuð í flestar vatnsveitur landsins og plastfilmuvélarnar voru mjög afkastamiklar.

Rörasteypan

Hér má sjá sverustu plaströrin mjakast úr rörsteypuvélunum. Rörin voru skorin í lengjur sem sjóða þurfti saman á lagningarstað. Grennri rör voru sett saman með sérstökum tengjum.

Röraflutningar

Hér er fullhlaðinn vörubíll með tengivagn að leggja af stað út á land, sennilega með rör í einhverja vatnsveituna. Það er vetrarfærð og keðjurnar koma sér vafalaust vel á ferðalaginu.

Bátar á Hafravatni

Heilsuþjálfun hefur verið á Reykjalundi í 45 ár og hluti af henni eru róðraræfingar á Hafravatni á sumrin, bæði á kajökum og kanóbátum. Bátasportið hefur alltaf notið mikilla vinsælda á Reykjalundi.

Hestamennska

Hestasport á Reykjalundi hófst fyrir rúmum 50 árum, nokkru áður en fjölbreytt heilsuþjálfun hófst á staðnum. Hestamennskan hefur ævinlega notið mikilla vinsælda á Reykjalundi.

Fatlaðir á hestbak

Hestasportið nýtist vel fötluðu fólki en stundum þarf að hafa sérhæfðar aðferðir við að komast á bak. Fatlaðir unglingar voru löngum í sumardvöl á Reykjalundi og kynntust þá heilsusportinu.

Eldamennska

Hjartasjúklingar í endurhæfingu á Reykjalundi fengu kennslu í heimilisstörfum og elduðu hollan mat undir stjórn Maríu Guðmundsdóttur. Ekki er annað að sjá en gleði hafi ríkt í kennslustundunum.

Reykjalundarhlaup

Heilsuþjálfar á Reykjalundi stóðu fyrir svonefndu Reykjalundarhlaupi í um áratug fyrir síðustu aldamót. Hlaupið varð vinsælt, bæði meðal almennings og keppnisfólks. Þátttaka var allt frá 400 manns og mest um níu hundruð.

Listaverk

Mörg dýrmæt listaverk eru á Reykjalundi, flest gefin af vistmönnum eða öðrum velunnurum staðarins. Þetta glerlistaverk nefnist „Máttur viljans“ og er eftir Leif Breiðfjörð. Það var afhjúpað árið 1978 af Ásgeiri Norðdahl, hann var fyrsti verkamaðurinn sem hóf störf á Reykjalundi.

Göngufólk

Hér leiðir Lárus Marinusson heilsuþjálfi lítinn hóp í göngu dagsins. Mikið er lagt upp úr útivist og hreyfingu á Reykjalundi og umhverfi staðarins er einstaklega hentugt fyrir gönguferðir og aðra útivist.

Forsetaheimsókn

Hér er Vigdís Finnbogadóttir í heimsókn á Reykjalundi. Með henni á myndinni eru Björn Ástmundsson forstjóri, Jón Þórðarson framleiðslustjóri, uppfinningamaður og hönnuður í plastiðjunni og Haukur Þórðarson yfirlæknir sem lagði grunninn að nútímalegri endurhæfingu á staðnum.

Fyrsta skóflustungan

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Hanna Kristleifsdóttir tóku fyrstu skóflustunguna að nýja íþróttahúsinu á Reykjalundi í október árið 1999. Forsetinn var með hönd í fatla eftir fall af hestbaki.

Íþróttahúsið

Íþróttahúsið á Reykjalundi, sem var tekið í notkun árið 2002, fellur vel að umhverfinu og gjörbylti allri aðstöðu til þjálfunar. Húsið hefur reynst einstaklega vel.

Gólfæfingar

Salurinn í íþróttahúsinu er rúmgóður og hátt er til lofts. Þar eru stundaðar hópæfingar og margs konar boltaleikir, öll aðstaða er til fyrirmyndar.

Sundæfingar

Æfingar í vatni þykja einkar árangursríkar til endurhæfingar og eru stór þáttur í sjúkraþjálfun á staðnum. Áður var lítil sundlaug í kjallara framhússins en með byggingu glæsilegrar íþróttaaðstöðu á Reykjalundi árið 2002 varð gjörbylting á þessu sviði.

Sundlaugarnar

Á þessari mynd sést vel yfir sundlaugarhlutann í nýja þjálfunarhúsinu. Þar eru tvær stórar sundlaugar og rúmgóður heitur pottur. Salurinn og sundlaugin nýta sömu búningsaðstöðuna.

Starfsfólk Reykjalundar árið 2005

Frá upphafi hefur mannauður verið helsti styrkur starfseminnar á Reykjalundi. Starfsmannavelta er þar lítil og starfsánægja hefur ávallt verið mikil. Hér er einstök mynd af starfsfólki Reykjalundar sumrið 2005.

Loftmynd

Loftmynd af Reykjalundi sumarið 2024. Þar sem áður voru tún, til vinstri á myndinni, rís nýtt íbúðahverfi í landi Helgafells. Í nágrenni Reykjalundar eru skógarstígar og fallegt útivistarsvæði.