Máttu borða þetta? – Sykursýki á Íslandi.
Heimildarmynd um sykursýki á Íslandi árið 2024. Sykursýki hefur verið í hvað hröðustum vexti á heimsvísu að undanförnu. Talið er að um 10% Íslendinga séu með sjúkdóminn. Fagaðilar fjalla um greiningu, meðferð og horfur fólks með sykursýki 1, sykursýki 2 og meðgöngusykursýki auk þess sem sjúklingar segja frá glímu sinni við þessar helstu gerðir sjúkdómsins.
Framleidd fyrir diabetes Ísland – félags fólks með sykursýki
- Umsjón: Páll Kristinn Pálsson
- Framleiðandi: EPOS Kvikmyndagerð