Greinin birtist fyrst í SÍBS-blaðinu 3/2026, sem var helgað bætiefnum og áhrifum þeirra á heilsu.

Okkar fyrstu kynni við bakteríur verða yfirleitt við fæðingu. Hvort sem við fæðumst um fæðingarveginn eða með keisaraskurði fáum við bakteríuflóru móður í vöggugjöf. Þessar bakteríur setjast svo að meðal annars í þörmum okkar, á húð og í munni og mynda flóru þess staðar. Fjöldi þessara baktería skiptir billjónum, sem svo er hægt að flokka í mörg þúsund tegundir. Þessar tegundir hafa mismunandi hlutverk, og setjast að á stöðum líkamans í samræmi við þau.
Lífsnauðsynleg hlutverk
Þessar bakteríur eru þó alls engin sníkjudýr sem við þurfum að losna við. Þvert á móti gegna þær fjölmörgum lífsnauðsynlegum hlutverkum. Þær taka þátt í að brjóta niður hluta fæðunnar sem við sjálf getum ekki melt, framleiða ýmis efni sem líkaminn getur nýtt, hafa áhrif á efnaskipti og taka þátt í starfsemi ónæmiskerfisins. Þær geta einnig haft áhrif á bólguviðbrögð og taugakerfið.
Bakteríuflóran er ekki meitluð í stein heldur breytist alla ævi. Hún breytist meðal annars eftir aldri, mataræði, lyfjanotkun, sýkingum og hreyfingu. Það er því ekki einfalt að skilgreina hina „fullkomnu“ þarmaflóru, heldur getur mismunandi samsetning hentað mismunandi einstaklingum. Heilbrigð þarmaflóra einkennist þó yfirleitt af miklum fjölbreytileika baktería og jafnvægi þeirra innbyrðis.
Þarmaflóran borðar það sem við borðum
Einn mikilvægasti þátturinn sem við getum sjálf haft áhrif á til að breyta þarmaflórunni er mataræðið. Rannsóknir hafa sýnt tengsl milli mataræðis sem er ríkt af trefjum og fjölbreyttum jurtaafurðum (grænmeti, ávextir, baunir o.s.frv.) og hagstæðari samsetningar og starfsemi þarmaflórunnar. Á hinn bóginn hefur mataræði sem einkennist af miklu magni af mjög unnum matvælum, rauðu kjöti, sykri og sætuefnum verið tengt við óhagstæðari samsetningu á flórunni.
Trefjar eru sérstaklega mikilvægar fyrir þarmaflóruna. Trefjar finnast meðal annars í baunum, ávöxtum, grænmeti, hnetum, fræjum og grófu korni. Margar tegundir trefja komast að hluta til eða öllu leyti ómeltar í gegnum magann og niður í þarma. Þar geta bakteríur nýtt trefjarnar við að mynda ýmis niðurbrotsefni, meðal annars stuttar fitusýrur, sem geta haft áhrif á starfsemi þarma og efnaskipti. Trefjar hjálpa einnig til við að viðhalda fjölbreyttum og hagstæðum bakteríutegundum í þarmaflórunni. Fyrir utan jákvæð áhrif á þarmaflóru okkar hefur mataræði ríkt af trefjum verið tengt við minnkaða áhættu á meðal annars hjarta- og æðasjúkdómum og sykursýki af tegund 2. Þau jákvæðu áhrif trefja sem við finnum hvað augljósast eru líklega heilbrigðari þarmahreyfingar og minnkað harðlífi.
Flest lönd mæla með 25-35 grömmum af trefjum á dag fyrir fullorðna, sem auðveldlega er hægt að fá yfir daginn með því að borða til dæmis hafragraut í morgunmat, hádegismat ríkum af baunum og grænmeti (vefja eða salat), fisk og grænmeti í kvöldmat, og ávexti og gróft brauð í millimál. Hins vegar er raunin sú að fæstir fullorðnir ná þessum viðmiðum þar sem hefðbundið „vestrænt“ mataræði inniheldur oft lítið af grænmeti, ávöxtum, heilkorni og baunum en mikið af unnum mat.
Prebiotics: Maturinn sem bakteríurnar elska
Trefjar hafa mismunandi virkni eftir því hvaðan þær koma. Sumar trefjar, en ekki allar, flokkast sem „prebiotics”, þ.e. efni sem þarmaflóran nýtir og geta haft jákvæð áhrif á heilsu. Prebiotics er eins konar góðgerlanæring eða fæða fyrir ákveðnar bakteríur. Prebiotics geta þannig stuðlað að vexti eða virkni ákveðinna baktería og þannig haft áhrif á starfsemi þeirra, efnaskipti og ónæmisviðbrögð. Ekki er enn að fullu vitað hvernig sum þessara ferla ganga fyrir sig en spennandi rannsóknir munu vonandi ljóstra upp um þau á næstu árum.
Prebiotics finnast í ýmsum matvælum eins og höfrum, sojabaunum, aspas, hvítlauk og lauk, en einnig er hægt að kaupa matvæli og bætiefni með viðbættum prebiotics.
Probiotics: Eru allir góðgerlar eins?
Probiotics, eða góðgerlar, eru hins vegar lifandi bakteríur sem geta haft heilsufarslegan ávinning þegar þær eru teknar inn í nægilegu magni. Góðgerlar finnast í ákveðnum matvælum en eru einnig seldir sem bætiefni, til dæmis í hylkjum eða dufti.
Hér skal þó hafa eitt í huga: ekki eru allir góðgerlar eins.
Áhrif góðgerla eru mjög háð bakteríutegund, stofni og magni. Baktería sem hefur sýnt árangur við einu ákveðnu ástandi hefur því ekki endilega sömu áhrif í öðru ástandi. Einnig þrífast bakteríutegundir mismunandi vel við ólíkar aðstæður. Það að taka inn góðgerla á töfluformi sem þrífast best í leggöngum gerir líklegast lítið gagn í þörmum annað en að skolast út í næstu klósettferð. Það að vara hafi orðið „probiotic” eða „góðgerlar” á umbúðum sínum þýðir því ekki endilega að varan muni hafa jákvæð heilsufarsleg áhrif. Það skiptir máli hvaða baktería og stofn er í vörunni, í hvaða magni og hvort rannsóknir styðji við notkun hennar við það tiltekna vandamál sem á að meðhöndla. Algengar bakteríur í góðgerlum ætlaðar þarmaflórunni eru tegundir af Lactobacillus og Bifidobacterium, en fleiri tegundir sýna áhugaverðar niðurstöður í nýlegum rannsóknum og gætu verið notaðar í náinni framtíð.
Gerjaður matur
Gerjaður matur er annað athyglisvert dæmi um hvernig hægt er að hafa áhrif á þarmaflóruna, og er líklega elsta leið mannskepnunnar til að hafa (óafvitandi) jákvæð áhrif á flóruna. Gerjun matar hefur verið notuð í árþúsundir sem geymsluaðferð, en við gerjun nota bakteríur næringarefni í matnum og brjóta niður í alkóhól, sýrur eða gös og við það breytist bæði bragð og lykt. Í sumum gerjuðum matvælum geta einnig verið lifandi bakteríur þegar maturinn er borðaður.
Súrkál, kimchi, kefir og sumar gerjaðar mjólkurvörur eru dæmi um matvæli sem geta innihaldið lifandi bakteríur. En ekki inniheldur allur gerjaður matur lifandi bakteríur þegar hann endar á disknum, flestar deyja til dæmis við hita og bakstur. Súrdeigsbrauð er gott dæmi um það. Við hefun súrdeigsbrauðs gegna bakteríur mikilvægu hlutverki, en hitinn við baksturinn drepur þær að mestu. Áhrif súrdeigsins og niðurbrotsefni sem bakteríurnar mynda (prebiotics) geta þó enn verið til staðar og haft hagstæð áhrif á þarmaflóruna.
Það er samt mikilvægt að gera ekki ráð fyrir að allur gerjaður matur sé sjálfkrafa góður fyrir þarmaflóruna, heldur skiptir næringargildi matvælanna í heild sinni máli. Súkkulaði og bjór eru vissulega gerjuð, en það sem hagnast flórunni okkar best eru gerjað grænmeti og aðrar trefjaríkar fæðutegundir.

En hvað með bætiefni?
Hér verður myndin aðeins flóknari. Góðgerla-bætiefni geta haft mjög gagnleg áhrif við ákveðnar aðstæður, en áhrifin eru ekki þau sömu fyrir alla, og alls ekki öll bætiefni hafa sömu vísindalegu stoðina.
Ein af þeim aðstæðum þar sem notkun góðgerla hefur verið mikið rannsökuð er í tengslum við sýklalyfjanotkun. Sýklalyf beinast að bakteríum sem valda sýkingum en drepa einnig hagstæðar bakteríur í þörmum (og annars staðar í líkamanum). Þetta getur valdið tímabundnu raski á þarmaflórunni og hjá sumum valdið aukaverkunum eins og niðurgangi og sveppasýkingu. Ákveðnir góðgerlar hafa í rannsóknum sýnt sig að geta dregið úr líkum á sýklalyfjatengdum niðurgangi, en best er að tala við lækni eða lyfjafræðing við inntöku sýklalyfja og fá ráð um hvaða góðgerlar henta best.
Fyrir flesta heilbrigða einstaklinga er gott að horfa á góðgerlabætiefni sem mögulegt viðbótarúrræði við ákveðnar aðstæður, fremur en nauðsynlegan hluta af daglegu mataræði. Fyrsta skrefið til að hlúa að þarmaflórunni er yfirleitt mun einfaldara: fjölbreytt og trefjaríkt mataræði sem byggir að stórum hluta á grænmeti, ávöxtum, heilkorni, hnetum, fræjum og baunum.
Þarmaflóran er hluti af heildarmyndinni
Þarmaflóran er stórt og flókið vistkerfi sem við erum ennþá að læra að skilja. Við vitum að flóran gegnir mikilvægu hlutverki í líkamanum, en ennþá er ekki vitað nákvæmlega hvaða bakteríusamsetning er best fyrir hvern og einn eða nákvæm gangverk bak við virkni sumra ferla.
Það sem við vitum hins vegar er að mataræði hefur veruleg áhrif á þetta vistkerfi. Fjölbreytt, trefjaríkt mataræði er ein besta leiðin til að gefa bakteríum í þörmum fjölbreytt úrval af næringu. Gerjaður matur getur einnig verið hagstæð viðbót, og góðgerlabætiefni hjálpað við ákveðnar aðstæður.
Í stað þess að hugsa um þarmaflóruna sem eitthvað sem þarf að „hreinsa” eða „laga” er því betra að hugsa um hana sem vistkerfi, eða jafnvel gæludýr, sem við búum með og getum hlúð að með fjölbreyttu mataræði og heilbrigðum lífsstíl.