Greinin birtist fyrst í SÍBS-blaðinu 3/2026, sem var helgað bætiefnum og áhrifum þeirra á heilsu.

Próteinrík matvæli, meðal annars lax, kjöt, kjúklingur, egg, baunir, kínóa og hnetur.
Próteinrík matvæli

Kreatín

Langflest okkar sem stundum reglulega hreyfingu reynum líka að borða næringarríkan og hollan mat til að styðja við vöðvauppbyggingu og endurheimt eftir æfingar. Mörg taka líka bætiefni, en áætlað er að Evrópubúar hafi eytt um 22-26 milljörðum evra í fæðubótarefni árið 2025. Þar eru vítamín og steinefni stærsti hluti markaðarins. Vörur tengdar íþróttanæringu, eins og próteinvörur, kreatín og amínósýrur eru meðal þeirra vöruflokka sem vaxa hvað hraðast.

Það er þó almennt ekki mælt með að taka bætiefni ef mataræði er fjölbreytt og næringarríkt og veitir næga orku. Eina undantekningin á þessum ráðleggingum er D-vítamín, sem er það fæðubótarefni sem öllum á Íslandi er ráðlagt að taka daglega.

Tafla yfir tvær heilsufullyrðingar um kreatín sem hafa verið samþykktar af EFSA. Þær fjalla um áhrif kreatíns á líkamlega frammistöðu við ákafa áreynslu og styrktarþjálfun fólks yfir 55 ára aldri, ásamt skilyrðum fyrir notkun fullyrðinganna.

Um fæðubótarefni og önnur matvæli gilda reglur um hvaða fullyrðingar má nota í merkingum og auglýsingum, næringar- og heilsufullyrðingar. Aðeins má fullyrða um áhrif næringarefna ef rannsóknir rökstyðja vel og styðja við fullyrðinguna sem er sett fram og hún hafi verið samþykkt af Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA). Þessar reglur eru til að vernda neytendur, svo hægt sé að meta hvort varan styðji raunverulega við heilsu á einhvern hátt og sé peningana virði.

Á samfélagsmiðlum sjáum við mörg hver auglýsingar um kreatín og hvað það ætti að gera fyrir okkur en einungis tvær heilsufullyrðingar hafa verið samþykktar af EFSA fyrir notkun á kreatíni, sjá nánar í töflu 1, í lauslegri þýðingu.

Það er vel mögulegt að margir taki kreatín á grundvelli annarra upplýsinga en þeirra sem koma fram í töflu 1. En eins og staðan er núna höfum við ekki rannsóknir í höndunum sem styðja við ýmsar aðrar fullyrðingar sem settar eru fram á samfélagsmiðlum. Það er ágætt að benda á að EFSA taldi ekki nægileg gögn styðja heilsufullyrðinguna um að kreatín bæti vitræna starfsemi og ESB hafnaði fullyrðingunni formlega 26. maí 2026 með reglugerð.

Prótein

Tafla sem sýnir próteinmagn í 100 grömmum af ýmsum matvælum, meðal annars kjöti, fiski, baunum, eggjum, hnetum og kornvörum.

Annað bætiefni sem er mikið notað eða sett aukalega í matvæli er prótein. Eins má sjá mikla áherslu á prótein á samfélagsmiðlum auk þess að margar matvörur eru merktar sem „próteinríkar“.

Í ráðleggingum um mataræði er mælt með að við fáum 10-20% orkunnar frá próteinum. Þetta samsvarar um það bil 1 grammi á hvert kíló líkamsþyngdar, sem þýðir að einstaklingur sem vegur 70 kíló þarf í kringum 70 grömm af próteinum daglega, að meðaltali. Smá munur milli daga skiptir ekki miklu máli. Rannsóknir benda til að hjá flestu íþróttafólki sé um 1,5 g prótein/kg/dag nægjanlegt til að hámarka ávinning styrktarþjálfunar.

Einstaklingar sem eru eldri en 65 ára ættu að fá um 15-20% orkunnar frá próteinum eða í kringum 1,2 g/kg/dag til að koma í veg fyrir tap á vöðvamassa með hækkandi aldri.

Margir kunna að halda að nú þurfi að rífa fram reiknivélina, en í raun er þetta ekki svo flókið þegar kemur að próteinneyslunni. Einstaklingar sem borða þrjár góðar máltíðir á dag og millimál þess á milli, þar sem í máltíðum er að finna próteingjafa, eru líklega að uppfylla sína próteinþörf. Síðasta könnun á mataræði fullorðinna á Íslandi sýndi að meðaltalsneysla á próteini var 18% af orkuinntöku, sem er mjög ríflega neysla á próteinum, enda erum við sem þjóð almennt dugleg að borða matvæli sem eru próteinrík eins og kjöt, fisk, egg og mjólkurvörur.

Meira prótein er ekki endilega betra

Upplýsingarammi um tímasetningu próteinneyslu og mikilvægi reglulegra, fjölbreyttra máltíða til að mæta próteinþörf líkamans.

Ef við erum að fá meiri orku en við þurfum þá breytir líkaminn líka próteinum í fitu sem fer í fituforða líkamans. Einnig er mikilvægt að vita að líkaminn á erfiðara með að nota prótein sem orkugjafa en fyrir vöðvauppbyggingu. Fyrir hreyfingu þurfum við að fá næga orku og uppáhalds eldsneytið fyrir vöðvana eru kolvetni og fita. Annað sem gerist ef við fáum of mikið prótein er að mikil próteinneysla tekur pláss frá öðrum mikilvægum næringarefnum sem líkaminn gæti misst af. Hér er um að ræða til dæmis næringarefni sem eru í heilkornavörum, ávöxtum, grænmeti og mjúkri fitu. Við megum ekki gleyma því að til þess að styðja við góða heilsu þurfum við að borða fjölbreytta og næringarríka fæðu.

Hægt er að skoða Fæðuhringinn til að meta hvort við séum að borða fjölbreytt og um það bil í réttum hlutföllum. Í töflu 2 má finna dæmi um góða próteingjafa úr venjulegu fæði. Höfum í huga að mælt er með að takmarka neyslu á rauðu kjöti (naut-, lamb-, svín- og hrossakjöt) við hámark 350 grömm á viku. Veljum því líka sem oftast fisk og baunir í aðalrétt til að fá prótein frá fjölbreyttum uppsprettum. Einnig er kjúklingur góð uppspretta próteina. Mælt er líka með 20-30 grömmum af ósöltuðum hnetum daglega, sem samsvarar lófafylli, sem gefa meðal annars góðar fitusýrur og prótein.

Fæðuhringurinn sýnir fjölbreytta fæðuflokka, meðal annars grænmeti, ávexti, kornvörur, mjólkurvörur, fisk, kjöt, baunir og hnetur, ásamt vatni.
Fæðuhringurinn sýnir mikilvægi fjölbreytts mataræðis til að tryggja líkamanum nauðsynleg næringarefni.

Samantekt

Bætiefni eins og kreatín og prótein geta verið góð viðbót við fjölbreytt og næringarríkt fæði hjá fullorðnu afreksíþróttafólki, sérstaklega ef þau missa stundum úr máltíðir vegna æfingaálags (á sérstaklega við um próteinduft). Bætiefni geta einnig reynst vel þegar erfiðlega gengur að nærast sökum sjúkdóma og/eða ef útiloka þarf margar fæðutegundir. Ekki er æskilegt að gefa börnum og unglingum aukalega prótein eða mjög próteinríkar vörur, til að trufla ekki það mikilvæga jafnvægi sem þarf að vera til staðar milli mismunandi næringarefna sem líkaminn þarfnast. Að borða venjulegan mat reglulega yfir daginn er alltaf besti kosturinn og á því er grunnurinn byggður.


Jóhanna Eyrún Torfadóttir

Næringarfræðingur og doktor í lýðheilsuvísindum. Verkefnisstjóri næringar hjá embætti landlæknis

Dögg Guðmundsdóttir

Klínískur næringarfræðingur hjá Landspítalanum og eigandi Nútríment Reykjavík