Greinin birtist fyrst í SÍBS-blaðinu 3/2026, sem var helgað bætiefnum og áhrifum þeirra á heilsu.

Fæðubótarefni skipa einkennilegan sess á lýðheilsusviðinu. Aðlaðandi umbúðir, áhrifavaldar og sjálfskipaðir sérfræðingar lofa bættum svefni, skarpari hugsun, öflugra ónæmiskerfi og lengri ævi. Á sama tíma snýst þjóðfélagsumræðan sífellt meira um hvað við getum gert til að viðhalda heilbrigði, en það getur verið snúið að greina hvað stendur í raun og veru á bak við loforðin.
Vandamálið er ekki að fæðubótarefni séu gagnslaus. Sum þeirra hafa þekkta verkun og geta meðhöndlað eða komið í veg fyrir skort á tilteknum næringarefnum hjá afmörkuðum hópum. Vandinn er hið sívaxandi bil milli gagnreyndrar þekkingar og þeirra upplýsinga sem ýtt er að neytendum. Nauðsynleg næringarefni eru ekki endilega betri í meira magni.
Orðræðan í tengslum við markaðssetningu fæðubótarefna er stundum til þess fallin að gera neytendum erfitt að greina hvaða staðreyndir liggja að baki. Orðalag á borð við betra jafnvægi, meira úthald eða bætt líðan vísa til eiginleika sem erfitt er að staðreyna og enn erfiðara að andmæla. Persónulegir vitnisburðir eru jafnvel færðir í vísindalegan búning með þar til gerðu orðavali og stundum er vísað í greinar sem eru á skjön við vandaðar vísindarannsóknir um sama málefni. Samfélagsmiðlar ýta svo undir afgerandi og dramatískan boðskap frekar en yfirvegað mat.
Niðurstaðan er að leikurinn verður æði ójafn: Neytendur þurfa að taka upplýsta ákvörðun meðan upplýsingaumhverfið er yfirfullt af auglýsingum, fullyrðingum og jafnvel mótsögnum – jafnvel svo mjög að vel upplýst fólk getur átt í mestu vandræðum með að greina vísindalegar staðreyndir frá persónulegum vitnisburði og kostaðri umfjöllun.
Spurningin snýst ekki bara um hvort við eigum að taka fæðubótarefni eða ekki. Hún snýst miklu fremur um hvort við getum tekið slíka ákvörðun á grundvelli upplýsinga sem þjóna heilsufari okkar frekar en sölutölum fyrirtækja. Ef verið er að auglýsa það er einhver að hagnast á því – spurningin er hvort það séu neytendur?