Greinin birtist fyrst í SÍBS-blaðinu 3/2026, sem var helgað bætiefnum og áhrifum þeirra á heilsu.

Kona skoðar næringarupplýsingar á matvöruumbúðum í verslun.

Hvað má segja og hverju ættu neytendur að treysta?

Margir hafa séð fullyrðingar á borð við „ríkt af trefjum“, „styður ónæmiskerfið“ eða „gott fyrir hjartað“ á matvælum og fæðubótarefnum. Slík skilaboð geta haft mikil áhrif á kaupákvarðanir neytenda. En hvað má framleiðandi í raun segja og hvaða reglur gilda?

Á Íslandi gilda samræmdar reglur Evrópska efnahagssvæðisins um næringar- og heilsufullyrðingar á matvælum. Reglurnar eru innleiddar hér á landi með reglugerð nr. 406/2010, sem byggir á reglugerð ESB nr. 1924/2006. Meginreglan er einföld: aðeins má nota þær næringar- og heilsufullyrðingar sem hafa verið metnar og samþykktar samkvæmt reglunum, og aðeins ef öll skilyrði fyrir notkun þeirra eru uppfyllt.

Hver er munurinn á næringarfullyrðingu og heilsufullyrðingu?

Næringarfullyrðing lýsir næringarlegum eiginleikum matvælis. Dæmi eru fullyrðingar eins og „inniheldur járn“, „trefjaríkt“ eða „sykurskert“. Slíkar fullyrðingar mega aðeins vera notaðar ef varan uppfyllir nákvæm skilyrði sem sett eru í reglugerðinni.

Heilsufullyrðing gengur skrefi lengra og lýsir tengslum milli næringarefnis, matvælis eða innihaldsefnis og heilsu. Dæmi er fullyrðingin „járn stuðlar að eðlilegum flutningi súrefnis um líkamann“. Slíkar fullyrðingar verða að vera á lista yfir samþykktar heilsufullyrðingar.

Hvernig eru fullyrðingar samþykktar?

Til að ný heilsufullyrðing fái leyfi þarf hún að byggja á traustum vísindalegum gögnum. Umsóknir eru metnar af Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA), og að því loknu tekur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákvörðun um hvort fullyrðingin verði samþykkt eða henni hafnað.

Þetta þýðir að fyrirtæki geta ekki einfaldlega vísað í einstaka rannsókn, eigin reynslu eða vinsældir vöru til að réttlæta heilsuloforð. Fullyrðingin þarf að standast strangt vísindalegt mat. Samkvæmt upplýsingum frá EFSA hefur stórum hluta þeirra heilsufullyrðinga sem sótt hefur verið um verið hafnað vegna skorts á fullnægjandi vísindalegum sönnunum.

Af hverju virka heilsuloforð svona vel?

Heilsuloforð höfða til vonar fólks um betri heilsu og einfaldar lausnir á flóknum viðfangsefnum. Einnig hafa reynslusögur oft sterk áhrif. Þegar einstaklingur segir frá eigin jákvæðri reynslu finnst mörgum það sannfærandi, jafnvel þótt sagan sanni ekki að varan hafi valdið áhrifunum.

Vandinn er sá að persónuleg reynsla tekur ekki mið af öðrum skýringum, svo sem breytingum á lífsstíl, lyfleysuáhrifum eða náttúrulegum sveiflum í heilsu. Þess vegna byggja reglurnar á vísindalegum rannsóknum fremur en einstökum reynslusögum.

Rauð flögg sem neytendur ættu að þekkja

Neytendur ættu að vera sérstaklega á varðbergi ef:

Hver er staðan á markaði hér á landi?

Eftirlit með næringar- og heilsufullyrðingum á matvælum er í höndum Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og Matvælastofnunar. Þrátt fyrir að reglur séu strangar og eftirlitsaðilar geri stöðugt athugasemdir við óleyfilegar merkingar er líklegt að alltaf megi finna á markaði vörur sem eru kynntar með ólögmætum hætti. Magn af vörum á markaði, sérstaklega fæðubótarefnum, er slíkt að eftirlitsaðilar komast ekki yfir að skoða allt sem þar er að finna og gera við það athugasemdir.

Að lokum

Reglur um næringar- og heilsufullyrðingar eru settar til að vernda neytendur gegn villandi upplýsingum og tryggja að heilsutengd markaðssetning byggi á vísindalegum gögnum. Þegar neytendur sjá leyfilega heilsufullyrðingu eiga þeir að geta treyst því að hún hafi verið metin samkvæmt sameiginlegu evrópsku regluverki. Engu að síður er alltaf skynsamlegt að lesa merkingar gagnrýnum augum og vera á varðbergi gagnvart loforðum sem virðast of góð til að vera sönn.

Mynd sem sýnir dæmi um næringar- og heilsufullyrðingar á umbúðum matvæla.
Dæmi um næringar- og heilsufullyrðingar á matvöruumbúðum sem geta haft áhrif á kaupákvarðanir neytenda.

Heimildir


Grímur Ólafsson

Fagsviðsstjóri merkinga, MAST