Greinin birtist fyrst í SÍBS-blaðinu 3/2026, sem var helgað bætiefnum og áhrifum þeirra á heilsu.

Gamla góða vatnið er okkur lífsnauðsynlegt, enda gegnir það fjölmörgum mikilvægum hlutverkum í líkamanum. Það tekur til dæmis þátt í flutningi næringarefna og úrgangsefna, hitastjórnun, meltingu og efnaskiptum. Við missum svo stöðugt vökva úr líkamanum, meðal annars með þvagi, öndun og svita, og því þurfum við að bæta vökvatapið reglulega upp með því að innbyrða vökva.
Undanfarið hafa steinefnadrykkir og aðrar drykkjarvörur notið mikilla vinsælda og markaðssetningin gefur oft til kynna að þeir séu nauðsynlegir fyrir alla. En er það virkilega svo?
Hversu mikinn vökva þurfum við?
Viðmið fyrir heildarvatnsneyslu fullorðinna eru um 2,0 lítrar á dag fyrir konur og 2,5 lítrar fyrir karla. Þetta magn miðast við vatn úr bæði mat og drykk.
Hins vegar er nákvæm vökvaþörf einstaklingsbundin og breytileg eftir aldri, líkamsstærð, mataræði, hreyfingu, hitastigi og fleiri þáttum. Þörfin getur einnig aukist við hreyfingu, í hita eða þegar svitamyndun er mikil. Því er gagnlegra að líta á viðmiðin sem almennan ramma en ekki nákvæmt daglegt markmið.
Hluti vatnsins sem við innbyrðum yfir daginn kemur úr matvælum og drykkjum, svo sem ávöxtum, grænmeti, súpum, jógúrt, mjólk, kaffi og te. Fyrir flesta er vatn besti drykkjarkosturinn í daglegu lífi. Þörfin fyrir steinefni, kolvetni eða koffín ræðst af aðstæðum, til dæmis hversu lengi og mikið við hreyfum okkur, hversu mikið við svitnum og hvort við þurfum að endurheimta orku eða sölt eftir mikla áreynslu.
Hvað gerist þegar við hreyfum okkur?
Við líkamlega áreynslu eykst hitaframleiðsla líkamans. Til að koma í veg fyrir of mikla hækkun líkamshita eykst meðal annars svitamyndun. Sviti er að mestu leyti vatn en inniheldur einnig einkum natríum, klóríð og fleiri steinefni.
Magn svita og styrkur steinefna í svita er mjög mismunandi milli einstaklinga. Sumir svitna mikið, á meðan aðrir svitna lítið og saltmagn í svita getur einnig verið mjög breytilegt. Þörfin fyrir vökva við hreyfingu ræðst því af mörgum þáttum. Lengd og ákefð æfingarinnar skipta máli, en einnig hitastig, rakastig, líkamsstærð og einstaklingsbundin svitamyndun. Við stutta og hóflega hreyfingu er yfirleitt nóg að drekka eftir þorsta og tryggja góða vökvun fyrir og eftir æfingu.
Hvenær dugir vatn?
Í langflestum hversdagslegum aðstæðum dugir vatn mjög vel. Það á til dæmis við um venjulegan vinnu- og skóladag, göngutúra, létta hreyfingu og flestar æfingar sem standa í um klukkustund eða skemur. Ef einstaklingur borðar reglulega og fjölbreytt fæði fær hann jafnframt steinefni úr matnum.
Þetta er mikilvægt að hafa í huga vegna þess að íþróttadrykkir eru oft markaðssettir sem nauðsynlegur hluti af hreyfingu. Fyrir flesta sem stunda almenna hreyfingu eru þeir hins vegar ekki nauðsynlegir.
Hvenær geta steinefnadrykkir skipt máli?
Steinefnadrykkir innihalda efni sem geta orðið mikilvægari þegar mikið magn af svita tapast, sérstaklega natríum. Það á einkum við um langvarandi eða mjög erfiða áreynslu, mikinn hita eða þegar svitamyndun er mikil. Þetta getur til dæmis átt við um langhlaup, langar hjólreiðar, þríþraut eða aðrar keppnir sem standa í margar klukkustundir.
Fyrir einstakling sem fer í 45–60 mínútna líkamsrækt, hleypur stuttan hring eða stundar venjulega íþróttaæfingu er yfirleitt ekki sérstök þörf á steinefnadrykk. Venjulegt fæði veitir yfirleitt nægilegt magn af natríum og öðrum steinefnum fyrir þessar aðstæður.
Þó að natríum tapist með svita er mikilvægt að hafa í huga að flestir fá nú þegar nægilegt magn af salti úr fæðunni, og margir jafnvel meira en ráðlagt er. Óhófleg saltneysla tengist hækkuðum blóðþrýstingi, sem eykur meðal annars hættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Því er ekki ástæða til að bæta salti við drykki að óþörfu.

Hvenær þarf að bæta við orku?
Annað mál kemur upp þegar æfing verður löng og krefjandi. Þá notar líkaminn meðal annars glýkógenbirgðir í vöðvum og lifur. Þegar áreynslan stendur lengi getur inntaka kolvetna hjálpað til við að viðhalda blóðsykri og frammistöðu.
Við langvarandi úthaldsæfingar getur því verið gagnlegt að fá kolvetni í formi íþróttadrykkja, hlaupagela eða annarra kolvetnaríkra matvæla. Í ákveðnum aðstæðum er algengt að miða við um 30–60 grömm af kolvetnum á klukkustund við lengri æfingar, þó nákvæm þörf sé einstaklingsbundin.
Þetta er allt annað en að þurfa kolvetnaríkan drykk fyrir venjulega 45 mínútna æfingu. Eftir venjulega æfingu getur venjulegur matur auðveldlega sinnt hlutverki endurheimtardrykks. Til dæmis getur máltíð með próteini og kolvetnum ásamt vatni veitt það sem líkaminn þarf.

Munurinn á íþrótta-, endurheimtar- og orkudrykkjum
Þótt þessar vörur geti litið svipað út gegna þær ólíkum hlutverkum:
- Íþróttadrykkir eru fyrst og fremst hannaðir til að veita vökva, kolvetni og steinefni. Þeir geta komið að gagni við langvarandi og erfiða hreyfingu, sérstaklega þegar mikið er svitnað.
- Endurheimtardrykkir eru ætlaðir eftir æfingu og innihalda oft blöndu af próteini og kolvetnum, auk vökva og stundum steinefni. Markmiðið er að styðja við endurheimt vöðva og enduruppbyggingu glýkógenbirgða. Þeir geta fyrst og fremst verið hentugir þegar einstaklingur hefur lítinn tíma til að borða, er á ferðinni eða þarf að endurheimta sig hratt fyrir næstu æfingu.
- Orkudrykkir eru hins vegar allt annars eðlis. Þeir eru fyrst og fremst ætlaðir til að auka árvekni og örvun, einkum vegna koffíns. Þeir eru því ekki sambærilegir við íþróttadrykki og ætti ekki að nota þá sem almenna vökvadrykki. Drykkirnir innihalda þar að auki oftast sætuefni og gefa þá litla sem enga orku.
Hvað er í orkudrykkjum?
Orkudrykkir geta innihaldið ýmis efni en algengustu innihaldsefnin eru koffín, sykur eða sætuefni, taurín, B-vítamín og stundum önnur örvandi efni.
Koffín er þó lykilefnið þegar kemur að örvandi áhrifum. Magn koffíns er mismunandi milli vörutegunda. Þess vegna er mikilvægt að lesa næringargildis- og innihaldslýsingu.
Koffín getur aukið árvekni og í ákveðnum aðstæðum haft jákvæð áhrif á íþróttaframmistöðu hjá fullorðnum. Meira er þó ekki endilega betra. Of mikil koffínneysla getur meðal annars valdið hjartsláttarónotum, skjálfta, óróleika, kvíða, meltingaróþægindum og höfuðverk. Hún getur einnig haft neikvæð áhrif á svefn.
Börn og ungmenni
Sérstaklega þarf að huga að orkudrykkjum hjá börnum og ungmennum. Börn hafa almennt lægri líkamsþyngd en fullorðnir og því getur tiltölulega lítið magn af koffíni verið stór skammtur miðað við líkamsþyngd. Þar að auki getur koffín haft áhrif á svefn og svefn er sérstaklega mikilvægur fyrir vöxt, nám, skap og almenna heilsu barna og ungmenna.
Ungt fólk sem stundar íþróttir þarf ekki orkudrykk til að fá orku fyrir æfingu. Fyrir venjulega æfingu er vatn ásamt reglulegri og næringarríkri fæðu yfirleitt nóg. Íþróttadrykkir hafa einnig takmarkað hlutverk hjá börnum og unglingum og ættu ekki að koma í stað vatns sem almennur daglegur drykkur.
Hvað ætti ég að velja?
Í daglegu lífi er vatn besti kosturinn fyrir flesta til að viðhalda vökvajafnvægi yfir daginn.
- Stuttar og hóflegar æfingar (um klukkustund eða skemur): Vatn er yfirleitt nóg.
- Langar eða mjög erfiðar æfingar: Íþróttadrykkur með kolvetnum og steinefnum getur verið gagnlegur, sérstaklega ef mikið er svitnað eða æfingin stendur yfir í margar klukkustundir.
- Eftir æfingu: Vatn og venjulegur matur duga yfirleitt vel til að bæta upp vökva og næringarefni. Endurheimtardrykkur getur verið hentugur ef erfitt er að fá sér máltíð eftir æfingu eða ef stutt er á milli erfiðra æfinga.
- Þegar markmiðið er að auka árvekni: Orkudrykkir geta þá aukið árvekni, en þeir eru hvorki nauðsynlegir til að fá vökva né góður staðgengill fyrir svefn, mat og vatn. Börn og ungmenni ættu sérstaklega að forðast þá.
Mundu: Þörfin er einstaklingsbundin og fer meðal annars eftir lengd og ákefð hreyfingar, hitastigi og svitamyndun. Fyrir flesta dugar vatn ásamt fjölbreyttu og næringarríku fæði mjög vel.
Niðurstaðan
Það er auðvelt að fá á tilfinninguna að flóknir og sérhæfðir drykkir séu nauðsynlegur hluti af heilbrigðum lífsstíl eða íþróttaiðkun. Vísindin gefa hins vegar mun einfaldari mynd.
Við val á drykk er gagnlegt að spyrja sig: Hversu miklum vökva er ég að tapa, hversu lengi og mikið er ég að hreyfa mig og þarf ég að bæta upp eitthvað annað en vatn?
Fyrir flesta er vatn þó allt sem þarf til að viðhalda góðri vökvun í daglegu lífi og við venjulega hreyfingu. Sérhæfðir drykkir geta vissulega átt sinn stað við ákveðnar aðstæður, en þeir eru ekki sjálfkrafa nauðsynlegir bara vegna þess að við hreyfum okkur. Oft er einfaldasta lausnin sú besta og í flestum tilfellum er það gamla góða vatnið.
Frekari næringarfróðleik byggðan á vísindalegri þekkingu má finna á Instagraminu: Næring og jafnvægi