Greinin birtist fyrst í SÍBS-blaðinu 3/2026, sem var helgað bætiefnum og áhrifum þeirra á heilsu.

Hvít bætiefnaglas með hylkjum, umkringt jarðarberjum, hnetum og grænum laufum á bleikum bakgrunni.
Fjölbreytt mataræði er besta leiðin til að fá flest þau vítamín og steinefni sem líkaminn þarfnast, en stundum er þörf á bætiefnum.

Maturinn sem við borðum veitir okkur orku en inniheldur líka margvísleg vítamín, steinefni og önnur gagnleg efni sem líkaminn þarf á að halda fyrir eðlilega líkamsstarfsemi og góða heilsu.

Í ráðleggingum um mataræði er búið að færa vísindalega þekkingu um þörf fyrir einstök vítamín og steinefni yfir í einfaldar ráðleggingar um fæðuval. Neytendur borða ekki einstök næringarefni heldur mat og því er almennt ekki þörf á að telja vítamín og steinefni sérstaklega. Ef ráðleggingum um mataræði er fylgt að mestu leyti eru góðar líkur á því að þörfum líkamans fyrir einstök næringarefni sé fullnægt. Undantekningar geta þó átt við til dæmis ef fólk er með ofnæmi eða óþol eða þarf að útiloka margar fæðutegundir úr mataræði af öðrum ástæðum.

Vítamín og steinefni

Vítamín og steinefni eru næringarefni sem gegna fjölmörgum mikilvægum hlutverkum í líkamanum. Líkaminn getur ekki framleitt flest vítamín og steinefni sjálfur og þarf því að fá þau úr fæðunni. Þau finnast í mismiklu magni í ýmsum fæðutegundum, sem undirstrikar mikilvægi þess að borða fjölbreytta fæðu flesta daga. Undantekning frá þessu er D-vítamín, sem er í fáum fæðutegundum og er þess vegna mælt með að allir taki það sem bætiefni allan ársins hring. Mælt er með því að ungbörn fái D-vítamíndropa eða úða daglega frá 1-2 vikna aldri.

Ráðlagðir dagskammtar

Upplýsingatafla um ráðlagða dagskammta D-vítamíns á Íslandi: 10 míkrógrömm fyrir börn 0–9 ára, 15 míkrógrömm fyrir 10–70 ára og 20 míkrógrömm fyrir 71 árs og eldri.

Embætti landlæknis gefur út ráðlagða dagskammta (RDS) fyrir vítamín og steinefni. RDS er sú dagleg meðalneysla næringarefna sem nægir til að mæta þörfum nær allra einstaklinga (venjulega 97,5%). RDS eru venjulega notaðir til að skipuleggja mataræði fyrir hópa fólks, til dæmis við gerð matseðla í mötuneytum, en einnig er hægt að nota þá sem viðmið um daglega neyslu vítamína, stein- og snefilefna fyrir einstaklinga.

Hvenær er þörf á bætiefnum?

Almennt þarf ekki að taka bætiefni ef borðuð er fjölbreytt og vel samsett fæða. Þó er Íslendingum ráðlagt að taka D-vítamín sérstaklega sem bætiefni, til dæmis lýsi, lýsisperlur, D-vítamíntöflur eða D-vítamínúða. D-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í líkamanum, meðal annars fyrir uppbyggingu beina. Á Íslandi er takmörkuð sólargeislun stóran hluta ársins og því getur verið erfitt að fá nægilegt D-vítamín með myndun þess í húðinni. D-vítamín finnst einnig í tiltölulega fáum fæðutegundum og því er ráðlagt að taka það sem bætiefni.

Ákveðnir hópar fólks geta haft þörf fyrir bætiefni, til dæmis er konum sem geta orðið barnshafandi ráðlagt að taka 400 míkrógramma fólattöflu fram í 12. viku meðgöngu, til viðbótar við fólatríkt fæði.

Þörfin fyrir flest vítamín og steinefni eykst á meðgöngu eins og sést í töflu yfir ráðlagða dagskammta. Á þetta sérstaklega við um járn. Í flestum tilfellum er nóg að borða járnríkan mat en þó getur í sumum tilfellum þurft að taka járn sem bætiefni, til dæmis ef járnbirgðir eru litlar eða blóðleysi kemur fram. Ekki er þó ráðlagt að taka járn í háum skömmtum nema samkvæmt ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks.

Konum sem ekki borða fisk og mjólkurvörur er jafnframt ráðlagt að taka 150 míkrógrömm af joði daglega sem bætiefni. Barnshafandi konur ættu ekki að nota þara eða þaratöflur sem joðgjafa þar sem hann getur innihaldið joð í stærri skömmtum en æskilegt er að neyta á meðgöngu og einnig önnur efni sem geta verið skaðleg fyrir fóstrið.

Upplýsingarammi um helstu fæðugjafa D-vítamíns, fólats, B12-vítamíns, kalks, járns og joðs og hvernig þessi næringarefni fást úr fjölbreyttu mataræði.
Fjölbreytt mataræði veitir flest þau vítamín og steinefni sem líkaminn þarfnast. Sumir hópar þurfa þó að huga sérstaklega að ákveðnum næringarefnum.

Eldra fólk og sjúklingar

Einstaklingar sem borða heldur lítið gætu þurft bætiefni, til dæmis eldra fólk og sjúklingar. Þeir sem fá minna en 1500 kkal á dag úr matnum eru taldir í verulegri hættu á ófullnægjandi neyslu vítamína og steinefna. Eldra fólk sem borðar lítið ætti því að fá fjölvítamín daglega. Eldra fólk getur einnig þurft að huga sérstaklega að B12-vítamíni, þar sem upptaka þess getur minnkað með aldrinum. Einnig geta sumir einstaklingar í lyfjameðferð þurft að taka ákveðin bætiefni meðan á henni stendur.

Grænkerar

Fæðuhringurinn sýnir fjölbreytta fæðuflokka, meðal annars grænmeti, ávexti, kornvörur, mjólkurvörur, fisk, kjöt, baunir og hnetur, ásamt vatni.
Fæðuhringurinn sýnir mikilvægi fjölbreytts mataræðis til að tryggja líkamanum nauðsynleg næringarefni.

Einstaklingar sem af ýmsum ástæðum útiloka ákveðna fæðuflokka úr mataræðinu gætu líka þurft bætiefni. Til dæmis þurfa þau sem útiloka dýraafurðir úr mataræðinu (grænkerar/vegan) að taka B12-vítamín. Eins er mikilvægt fyrir þann hóp að velja vítamín- og steinefnabættar jurtaafurðir, til dæmis B12-vítamín-, kalk- og joðbætta jurtamjólk og þarf þá að lesa utan á umbúðir til að tryggja að varan innihaldi þessi efni.

Þessi hópur þarf einnig að tryggja nægilega inntöku af meðal annars B2-vítamíni (ríbóflavíni), sinki og seleni til að forðast skort. Hægt er að ráðleggja töku fjölvítamína fyrir grænkera, óháð því hvort notuð er jurtamjólk eða jurtavörur með viðbættum bætiefnum.

Embætti landlæknis hefur gefið út sérstakar ráðleggingar fyrir ákveðna hópa sem kjósa grænkerafæði (vegan mataræði), annars vegar fyrir barnshafandi konur og konur með barn á brjósti og hins vegar fyrir börn frá fæðingu til sex ára aldurs.

Langvarandi neysla bætiefna

Þó að margir gætu þurft að taka bætiefni til að uppfylla næringarþörf líkamans, eins og D-vítamín, þá ber að geta þess að ekki hefur verið sýnt fram á að langvarandi neysla næringarefna á formi bætiefna dragi úr hættu á langvinnum sjúkdómum á borð við hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki af tegund tvö og krabbameina. Ekki hefur heldur verið sýnt fram á annan heilsufarslegan ávinning af slíkri neyslu fyrir heilbrigða einstaklinga sem borða fjölbreytt fæði og fullnægja orkuþörf sinni. Þvert á móti benda margar rannsóknir til að stórir skammtar af ákveðnum bætiefnum, einkum vítamínum með andoxunarvirkni (svo sem betakarótín, forveri A-vítamíns), geti haft neikvæð áhrif á heilsu og jafnvel aukið hættu á dauða.

Efri mörk neyslu

Mikil neysla á sumum vítamínum og steinefnum getur haft neikvæð áhrif á heilsuna og jafnvel eitrunaráhrif. Því hafa verið sett gildi fyrir efri mörk neyslu (hámark á dag) fyrir sum næringarefni.

Fyrir ákveðin næringarefni, sérstaklega A-vítamín (retínól), D-vítamín, járn og joð, getur langvarandi neysla yfir þessum mörkum aukið hættuna á skaðlegum áhrifum, meðal annars á lifur, nýru og skjaldkirtil, allt eftir því hvaða næringarefni á í hlut.

Fyrir önnur næringarefni geta neikvæð áhrif mikillar neyslu verið mildari, til dæmis vandamál í meltingarvegi, minnkuð upptaka og nýting annarra næringarefna og geta þá valdið hugsanlegum næringarefnaskorti á þeim.

Efri mörkin miðast við það magn sem óhætt er að neyta daglega yfir lengri tíma, sem talið er ólíklegt að hafi neikvæð áhrif á heilsu. Efri mörkin eiga ekki endilega við í þeim tilfellum þegar inntaka á tilteknu bætiefni er ráðlögð af lækni eða næringarfræðingi/næringarráðgjafa.

Samantekt

Besta leiðin til að tryggja líkamanum þau vítamín og steinefni sem hann þarf á að halda er að borða fjölbreyttan og næringarríkan mat. Flestir geta fengið nægilegt magn vítamína og steinefna úr fjölbreyttum mat án þess að þurfa að taka bætiefni.

Þó eru mikilvægar undantekningar frá þessu, en sérstaklega er mælt með D-vítamíni fyrir alla Íslendinga, fólat fyrir konur sem gætu orðið barnshafandi og B12-vítamíni og fleiri efnum fyrir þá sem neyta lítilla eða engra dýraafurða. Einnig geta einstaklingar með mjög litla orkuinntöku eða við sérstakar aðstæður þurft viðbótarnæringarefni.

Það er mikilvægt að líta ekki á bætiefni sem leið til að bæta upp fyrir ófullnægjandi mataræði. Fjölbreytt næringarríkt mataræði er grundvöllur góðrar næringar. Bætiefni geta hins vegar gegnt mikilvægu hlutverki þegar sérstök þörf er fyrir þau.


Hólmfríður Þorgeirsdóttir

Verkefnastjóri næringar hjá embætti landlæknis