Greinar

Reykjalundur í 80 ára

Sveinn Guðmundsson

SÍBS hefur starfað í þágu heilbrigði landsmanna í nær heila öld, án hagnaðarsjónarmiða. Reykjalundur, sem nú fagnar 80 ára afmæli, hefur alla tíð verið hornsteinn í íslenskri endurhæfingu og lykilþáttur í starfi SÍBS.

Undanfarna mánuði hefur SÍBS unnið að metnaðarfullri framtíðarsýn og stefnumótun fyrir Reykjalundarsvæðið í samstarfi við KPMG. Í þeirri vinnu hefur félagið bæði litið til eigin reynslu og þeirra miklu breytinga sem orðið hafa í samfélaginu, hvort sem litið er til breyttra þarfa sjúklinga, nýrrar tækni eða þróunar í heilbrigðisþjónustu.

Á landsvæði SÍBS að Reykjalundi eru fjölmörg tækifæri til að þróa þjónustu sem styður við heildræna nálgun í endurhæfingu og heilbrigðisþjónustu.

Markmiðið er að móta nýja og sjálfbæra heildarsýn þar sem endurhæfing, fræðsla, rannsóknir og þjónusta tengjast nánum böndum. SÍBS hefur í því sambandi óskað eftir viðræðum við stjórnvöld og aðra hagaðila um langtímauppbyggingu á grunnstoðum heilbrigðiskerfisins með áherslu á nýjan þjónustusamning fyrir Reykjalund.

SÍBS leggur áfram áherslu á að vinna að heilbrigði þjóðarinnar í gegnum fræðslu, forvarnir og hagsmunagæslu, í nánu samstarfi við stjórnvöld, heilbrigðisstofnanir og aðra hagaðila. SÍBS lítur björtum augum til framtíðar og er tilbúið í samvinnu um uppbyggingu sem mun efla endurhæfingu og bæta heilsu landsmanna um ókomin ár.

Í tilefni 80 ára afmælis Reykjalundar vill SÍBS færa öllum starfsmönnum, sjálfboðaliðum og sjúklingum innilegar þakkir fyrir þeirra ómetanlega framlag í gegnum árin.

Starfsfólk Reykjalundar hefur allt frá upphafi verið drifkraftur endurhæfingar á Íslandi, fagfólk sem vinnur af alúð, þekkingu og samkennd að því markmiði að bæta lífsgæði og endurheimta sjálfstæði fólks eftir veikindi og slys. Sjálfboðaliðar hafa á sama hátt verið ómetanleg stoð í starfinu og skapað hlýlegt og manneskjulegt andrúmsloft sem einkennt hefur Reykjalund frá fyrstu dögum.

Við sendum einnig hlýjar kveðjur til allra þeirra tugþúsunda sjúklinga sem hafa leitað þjónustu á Reykjalundi í gegnum árin og aðstandenda þeirra. Þeir eru ástæða tilveru okkar og innblástur til áframhaldandi þróunar og nýsköpunar í endurhæfingu.

Við fögnum 80 ára sögu sem byggir á hugsjón, samstöðu, umhyggju og horfum björtum augum til framtíðar með nýja sýn, ný tækifæri og áframhaldandi trú á mikilvægi endurhæfingar fyrir heilsu og lífsgæði þjóðarinnar.

SÍBS og Reykjalundur – fyrir heilbrigða þjóð í 80 ár.

Til sigurs fyrir lífið sjálft!


Sveinn Guðmundsson

Formaður SÍBS