Greinar

Mjór er mikils vísir

Alma D. Möller

Það á svo sannarlega við um Reykjalund þegar litið er um öxl, til upphafsins fyrir 80 árum. Pétur Bjarnason hefur lýst því þegar SÍBS keypti spildu úr landi Reykja árið 1944 þar sem áformað var að reisa vinnuheimili fyrir útskrifaða berklasjúklinga. Landakaupin voru umdeild og sögðu einhverjir að þarna hefði verið keyptur eyðimelur því svæðið var þá gróðursnautt, öndvert því sem við þekkjum í dag. Sama ár hófst bygging tíu smáhýsa, af þeim voru fimm tilbúin í febrúar 1945 þegar vinnuheimilið tók formlega til starfa undir nafninu Reykjalundur.

Það sýndi sig að hinn meinti eyðimelur reyndist gróðursæll í margvíslegum skilningi. Það var ekki aðeins gróðurinn sem dafnaði á Reykjalundi. Það gerði starfsemin líka og hefur gert alla tíð. SÍBS hefur frá upphafi verið bakhjarl Reykjalundar en samtökin voru stofnuð 1938 með það að markmiði að útrýma berklaveiki á Íslandi – eða hvíta dauða – eins og berklar voru oft nefndir. Það tókst í áranna rás en þess ber að geta að enn þann dag í dag eru berklar einn banvænasti sjúkdómur heimsins.

Berklum var útrýmt á Íslandi en endurhæfingarstarfið á Reykjalundi lagðist ekki af þótt upphaflegu markmiði væri náð. Reykjalundur sem hóf starfsemi sína í fimm smáhýsum á gróðursnauðu landi er í dag stærsta endurhæfingarstofnun landsins. Þar er veitt alhliða endurhæfing byggð á þverfaglegri teymisvinnu og alþjóðlegum klínískum leiðbeiningum. Þótt umfang og inntak endurhæfingar á Reykjalundi sé gjörbreytt frá upphafinu á eyðimelnum er markmið endurhæfingar í grundvallaratriðum hið sama: Að bæta líðan og lífsgæði sjúklinga, auka færni og virkni og styðja fólk til sjálfshjálpar og sjálfstæðis. Um þetta snýst endurhæfing og við þekkjum örugglega öll mörg dæmi um einstaklinga sem hafa náð ótrúlegum árangri í kjölfar sjúkdóma eða annarra áfalla með góðri og markvissri endurhæfingu.

Endurhæfing er ein af grunnstoðum góðrar og árangursríkrar heilbrigðisþjónustu. Saga Reykjalundar og uppbyggingin þar í 80 ár sýnir það glöggt sem og margvísleg önnur endurhæfingarstarfsemi sem hefur vaxið og dafnað á liðnum árum og bætt lífsgæði svo margra.

Saga Reykjalundar er vitnisburður um hvernig hægt sé að breyta eyðimel í gróðursæla vin þegar unnið er af husjón, elju og fagmennsku. Ég þakka öllum sem lagt hafa hönd á plóginn í gegnum árin til að bæta líf þeirra sem notið hafa þjónustu Reykjalundar og þeirra sem eiga eftir að njóta hennar um ókomna tíð.


Alma D. Möller

Heilbrigðisráðherra