Greinar

Hollt mataræði, hreyfing og svefn

Páll Kristinn Pálsson

Greinin birtist fyrst í SÍBS-blaðinu 3/2026, sem var helgað bætiefnum og áhrifum þeirra á heilsu.

Upphafið að stofnun fyrirtækisins Heilaheilsa má rekja til ársins 2016 er Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir sálfræðingur, þá atvinnuknattspyrnukona í KR, fékk höfuðhögg á leikvellinum og alvarlegan heilahristing af völdum þess.

„Þetta slys batt enda á feril minn sem knattspyrnukona,“ segir Ólína þegar ég hitti hana á dögunum í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Urðarhvarfinu í Kópavogi. „Ég var í doktorsnámi á sama tíma og í því námi var ég að skoða hugarstarfsemi fólks með ýmsar geðraskanir og einnig að meta árangur hugrænnar endurhæfingar á Landspítalanum. Ég var þannig að sérhæfa mig í ýmsu sem tengdist heilanum og miðtaugakerfinu. Ég hafði mikinn áhuga á taugasálfræði og að þjálfa upp hugarstarfsemi eftir andleg veikindi hjá fólki sem hafði leitað aðstoðar við þeim á geðsviði Landspítalans. Svo þegar ég varð sjálf fyrir þessu áfalli ákvað ég að reyna að skilja betur hvað gerist þegar maður fær heilahristing. Síðan hélt ég áfram að skoða hvað hægt væri að gera til að vernda heilann alla ævina, hámarka hugarstarfið og fór að kynna mér heilaheilsu almennt.“

Fjölbreytt heilastarf

Í hverju eru viðfangsefni Heilaheilsu helst fólgin?

„Við þjónustum bæði fólk sem hefur fengið væga höfuðáverka, svo sem heilahristing, og fólk sem hefur orðið fyrir vægari heilablæðingum. Einnig aðstoðum við fólk sem glímir við ýmiss konar hugrænan vanda, svo sem einbeitingarskort, athyglisbrest, minnistruflanir og skerta stýrifærni. Orsakirnar geta verið margvíslegar, til dæmis höfuðhögg eða aðrir áverkar, langvinnt COVID, kulnun eða veirusýkingar. Allt þetta getur haft áhrif á starfsemi heilans. Oft eru afleiðingarnar líka mjög persónulegar og geta meðal annars birst í breytingum á sjálfsmynd og persónuleika.“

Orðið heilaheilsa – er það ekki tiltölulega nýtt?

„Jú, það er tiltölulega nýlega farið að nota það orð, sérstaklega síðustu fimm árin eða svo. Við erum enda komin með miklu betri leiðir til að rannsaka heilann en áður var. Alls kyns tæknilegar framfarir og rannsakendur eru líka orðnir meðvitaðri um að það sé ekki nóg að stunda sitt starf inni á rannsóknarstofum heldur þurfi líka að koma niðurstöðunum út til almennings á mannamáli. Það er sú krafa sem gerð er í æ ríkari mæli til vísindamanna. Þannig að fólk er farið að fá miklu meira af góðum upplýsingum á mannamáli um heilann og nýjustu niðurstöður úr rannsóknum á honum sem miðlað er í gegnum samfélagsmiðla eða bækur sem er ekki of erfitt að lesa. Þekkingin er miklu aðgengilegri núna en áður hefur tíðkast.“

Stjórnstöð líkamans

Og heilinn er auðvitað aðallíffæri okkar fyrir utan hjartað …

„Jú, heilinn er það líffæri sem stjórnar öllu og best að skilja hann sem stjórnstöð líkamans. Þegar heilinn verður fyrir áfalli eða áverka þá getur það líka haft áhrif á önnur kerfi líkamans, svo sem hormónakerfið, hjarta- og æðakerfið, taugakerfið, sjónkerfið og svo framvegis. Oft þegar fólk heldur að vinna þurfi beint með heilann þá liggur vandinn kannski í öðrum kerfum. Heilinn er þá ekki að ná að samræma skilaboðin sem eru í gangi og halda öllu starfandi í réttum takti. Þess vegna er mikilvægt að skoða öll kerfin og átta sig á því hvar vandinn liggur.

Þegar maður fer að skoða eitthvað um bætiefni, mataræði eða hvað sem hjálpar heilanum að starfa hratt og eðlilega þarf maður að skilja orkuþörf heilans því hann hefur mjög mikla orkuþörf. Við verðum að hugsa um að hann fái nóg af góðum næringarefnum og öllu öðru sem hann þarf, eins og súrefni og greiðu blóðflæði til að búa til orku. Og svo þurfum við að takmarka allt það sem getur truflað þessa orkuframleiðslu. Það er ekki nóg að setja inn allt sem er gott, heldur verðum við líka að taka út allt sem er mögulega að hindra orkuframleiðsluna. Maður verður alltaf að hafa þetta tvennt í huga, það er að minnsta kosti þannig sem ég lít á þetta.“

Er ekki margt sem við skiljum ekki um heilann?

„Það er gömul mýta að við vitum ekkert um heilann og það er ekki alveg rétt. Við vitum margt um heilann og skiljum margt um hvernig hann starfar. En það er vissulega margt ókannað enn. Kannski er merkasta uppgötvunin varðandi heilann hversu mikill sveigjanleiki hans er, en það er nokkuð langt síðan vísindamenn áttuðu sig á því. Heilinn er ekki eins og bein, sem er tilbúið og breytist lítið, heldur lifandi vefur sem er í sífelldri mótun og þróun. Allt sem við gerum hefur áhrif á heilann, og sumir hlutir sem við gerum ekki geta líka breytt honum. Þetta er svo mikilvægt að skilja, af því hann er svo orkufrekur og er stöðugt að vinna við að halda okkur á lífi og passa upp á að allt sé í jafnvægi í líkamanum. Og svo þegar hann þarf ekki að nota orku í eitthvað þá dregur hann úr virkni þeirra svæða til að spara orku.

Heilinn er sífellt að leitast við að spara orku og þegar við gerum ekki eitthvað í einhvern tíma þá verða þeir ferlar aðeins veikari og þá þarf maður að koma þeim aftur upp í æfingu. Það að læra að hjóla eða synda, færni í að leika á hljóðfæri eða vinnutengd verkefni sem maður hefur ekki sinnt í mörg ár og telur sig ekki lengur muna hvernig voru unnin eru dæmi um það sem fólk heldur að það sé kannski búið að gleyma. Þegar maður fer að gera þessa hluti aftur þá virkjast þessar gömlu tengingar því heilinn þekkir ferlana. Það er sem sagt ekki þannig að hlutirnir hverfi eða deyi, heldur voru þeir bara lagðir til hliðar og orkan notuð í annað. Þeir eru þarna inni og það þarf bara að virkja aftur rétta ferla.“

En það er ljóst að ekki er hægt að laga alla heilastarfsemi sem skerðist og slík áföll leiða fólk oft til dauða …

„Það er alveg rétt. Fólk getur orðið fyrir áverka sem eyðileggur heilafrumur og taugafrumur og það gerist einnig í heilahrörnunarsjúkdómum. Heilafrumur geta þannig dáið eða breyst og minnkað vegna sjúkdóma. Þegar fólk verður fyrir áverka og blæðingum vill stundum tapast sú færni sem svæðið sem fyrir því verður stjórnar, svo sem að ganga eða að tala eða eitthvað slíkt. En þá getur fólk líka oft lært að gera það aftur því þótt skemmdin sé til staðar fara tengingar í kringum hana að breytast og mynda nýjar tengingar.“

Grunngildin aðalatriðið

Hvernig tengist þetta allt umræðunni um bætiefni? Notar þú í þínu starfi einhver sérstök efni til að lagfæra eða auka heilaheilsu?

„Nú um stundir finnur fólk mikið fyrir hugrænum vanda, og heilaþoka, einbeitingarskortur og minnisleysi eru ofarlega í umræðunni. Líf okkar er orðið ofboðslega flókið, það er mikið sem heilinn þarf að geta gert, miklu meira en hann þurfti að gera fyrir tíu eða tuttugu árum síðan. Hann keyrir alltaf á hámarks orku og almennt séð skiptir mestu máli að passa að grunngildin séu í lagi áður en farið er að spá í einhver bætiefni. Í fullkomnum heimi þá værum við bara að borða ótrúlega næringarríka fæðu sem inniheldur allt sem við þurfum og ekkert sem við þurfum ekki eða tefur fyrir orku. Helst viljum við hafa það þannig. Svo er raunveruleikinn ekki alveg þannig. Það er markaðsett alls konar annað fæði og fólk er oft týnt í því hvað er hollt og hvað óhollt. Fólk er óöruggt um þetta – er fita góð og kolvetni slæm? – og þar af leiðandi er það auðveld bráð fyrir markaðssetningu þegar búið er að skapa þessa óvissu um hlutina.

Í grunninn eru það almennar leiðbeiningar um heilbrigt mataræði sem gilda. Til að passa að heilinn sé að fá allt sem hann þarf þá mæli ég með því fyrir alla sem til mín leita að byrja á því að fara í blóðprufu og láta skoða öll helstu gildi og öll hormón sem hægt er að skoða – allt sem heimilislæknirinn er til í að vinna með, og ef eitthvað er undir viðurkenndum viðmiðum að láta laga það. Það er grunnurinn áður en við förum að hugsa um að bæta einhverju við. Ef hann er ekki til staðar þá er hitt ekki að fara að skila manni einhverju miklu. Sem sagt byrja alltaf á þessu, bæði hormón og almenn gildi, D-vítamín, B-vítamín, járngildin, sölt og svo framvegis. Allt þetta þarf að skoða.

Ef maður er ekki að fá úr mataræðinu það sem maður þarf til að halda gildunum sínum þá þarf stundum að fara í einhverja tímabundna uppbótarmeðferð sem lagar stöðuna. Síðan mæli ég með að fólk hugi að þessum almennu gildum alla ævina, láta mæla þau reglulega með blóðprófum og láta aldrei langan tíma líða á milli þeirra. Sama gildir um atriði eins og blóðþrýstinginn og LDL-kólesterólið slæma. Við þurfum að hugsa vel um hjartað og heilann. Þessi almenni grunnur sem læknarnir tala um er alltaf byrjunin.

Vandamálið er hvað það ríkir mikil óreiða í umræðunni um bætiefnin. Nú erum við ekki að tala bara um D-vítamínið eða lýsið sem eru mjög mikilvæg fyrir heilaheilsuna hér hjá okkur. Við erum að tala um alls konar próteinduft og fleiri duft sem verið er að markaðssetja. Góðgerlar og hitt og þetta og alls konar. Það er svo mikil óreiða í því sem gerir fólk óöruggt og þá er svo auðvelt að ginna það til alls konar kaupa. Þetta er gert mjög meðvitað af markaðsöflunum. Það er líka þannig að bætiefnin eru ekki undir jafn ströngum prófunum og eftirliti og lyf. Upplýsingar um efni sem eiga að bæta orkuna eru iðulega engar eða afar litlar og óljósar hvað varðar forsendurnar sem fullyrðingarnar eru byggðar á. Til dæmis hafa rannsóknir sýnt að magn sumra efna getur jú skilað einhverjum árangri en að til þess þurfi kannski fimmfalt magn af því en gefið er upp sem daglegur skammtur á pilluglasinu. Fólk er þá að kaupa eitthvað dýrum dómum en er í rauninni ekki að fá neitt út úr því. Svo er í sumum tilfellum ekki verið að benda á aukaverkanir sem viss bætiefni geta haft í för með sér. Framleiðandinn þarf ekki að tilgreina það á umbúðunum af því að það skortir allt eftirlit á þessum vörum. Að því sögðu er ég alls ekki á móti bætiefnum, en hvet fólk til að kynna sér þau vel og nota af skynsemi.“

Meðvitaðri eftir að ég hætti

Notaðir þú sjálf sem atvinnuíþróttakona á sínum tíma einhver bætiefni til að auka frammistöðuna og endurheimt? Horfirðu á þetta öðrum augum núna en þú gerðir þá?

„Já, ég horfi á þetta allt öðrum augum núna. Ég skil miklu betur mikilvægi þess að hafa öll gildin mín í lagi en ég gerði þá. Þá pældi ég heldur ekki eins mikið í þessum hlutum. Ég borðaði vissulega mikið af hollu fæði til að efla hjá mér orkuna, en var til dæmis alltaf lág í járni. Ég bjó við mjög mikinn járnskort sem ég lagaði ekki almennilega fyrr en ég var hætt að spila fótbolta. Eftir á hefði ég viljað hafa hugsað betur um þessa grunnþætti. Núna er ég mjög meðvituð um að gæta þess að líkami minn hafi sem best viðnám við hverju sem er.“


Páll Kristinn Pálsson

Ritstjóri