Greinin birtist fyrst í SÍBS-blaðinu 1/2026 sem fjallar um næringu og áhrif mataræðis á heilsu.

Af hverju er svona erfitt að borða hollt?
Spurningin „Hvað er í matinn?“ kemur gjarnan upp einmitt þegar orkan er lítil og tíminn naumur. Þá verður einfaldasti kosturinn gjarnan fyrir valinu, þó hann sé ekki alltaf sá skynsamlegasti. Flest viljum við borða næringarríkan mat, en skipulag og matseld taka tíma. Í dagsins önn er því auðveldast að grípa í það sem er handhægt.
Mataræði hefur víðtæk áhrif á heilsu og líðan og tengist þróun margra langvinnra sjúkdóma. Áhrifin verða sjaldnast sýnileg á einum degi heldur safnast þau upp með tímanum – jákvæð sem neikvæð. Daglegar ákvarðanir skipta því máli, jafnvel þótt hver og ein þeirra virðist smávægileg.
Einmitt þess vegna var matarvefurinn gottogeinfalt.is settur á laggirnar. Markmiðið er að auðvelda fólki að taka skynsamlegar ákvarðanir í dagsins önn. Í stað óljósra leiðbeininga eða almennra heilsufullyrðinga býður vefurinn upp á hollar og einfaldar uppskriftir að hversdagsmat, skýrar eldunarleiðbeiningar og hagnýt verkfæri á borð við vikumatseðla og innkaupalista sem einfalda skipulagið og styðja við betri matarvenjur.

Notendur geta síað uppskriftir eftir tegund rétta eða innihaldsefnum.
Þekking breytir ekki venjum nema hún verði framkvæmanleg
Við búum á tímum þar sem upplýsingar um næringu eru alls staðar og misvísandi skilaboð berast úr ýmsum áttum. Við heyrum um grænmeti, trefjar, fisk, baunir, salt, sykur og fitu. Flest vitum við líklegast að skynsamlegt sé að borða nægilegt magn úr plönturíkinu, fá nóg af trefjum og próteini og velja fæðu sem styður almennt við góða heilsu.
Samt finnum við oft fyrir þreytu gagnvart heilsuráðum sem dynja á okkur og getum átt erfitt með að greina hvað skiptir máli. Stundum hljóma skilaboðin eins og kröfur sem bætast ofan á annasamt daglegt líf. Þá er auðvelt að gefast upp áður en við byrjum, jafnvel þótt viljinn sé til staðar.
Hér skiptir nálgunin miklu. Gott og einfalt byggir á að breytingar þurfi ekki að vera stórar til að skipta máli. Það þarf ekki að „gera allt rétt“ heldur einfaldlega að byrja einhvers staðar.

Óla Kallý Magnúsdóttir nýtir Gott og einfalt sem verkfæri í starfi sínu hjá Heilsubrú.
Hindranirnar í hversdeginum eru raunverulegar
Aðstæður í daglegu lífi geta gert hollari matarvenjur erfiðar. Tíminn er oft naumur og innkaupin enn eitt verkefnið á löngum degi. Matargerð getur virst flókin, sérstaklega þegar ólíkur smekkur er á heimilinu eða fólk finnur fyrir óöryggi í eldhúsinu. Þá skiptir máli að lausnir geri fleirum kleift að taka þátt í matseldinni. Á gottogeinfalt.is er lögð áhersla á skýrar og aðgengilegar leiðbeiningar sem gera jafnvel óvönum auðvelt að fylgja uppskriftum og minnka þannig álag í dagsins önn. Í lýðheilsu er oft talað um stóra samhengið en í eldhúsinu heima snýst þetta um hvað virkar strax í dag eða í þessari viku.
Auk uppskrifta má á vefnum finna aðgengilegt fræðsluefni um næringartengd málefni sem dregur úr ruglingi sem getur skapast vegna misvísandi upplýsinga.

Kristjana og Sæþór nýta vikumatseðla og innkaupalista í daglegu lífi.
Skipulag sem sparar tíma og minnkar matarsóun
Eitt af því sem oft reynist erfiðast við að bæta mataræðið er innkaupaferlið og skortur á tíma og skipulagi. Þar nýtast verkfæri gottogeinfalt.is sérstaklega vel. Á vefnum er hægt að setja saman vikumatseðil á einfaldan hátt, velja úr tilbúnum matseðlum og láta innkaupalista verða til sjálfkrafa út frá valinu.
Auðvelt er að stilla uppskriftir eftir því fyrir hve marga er eldað, deila innkaupalistanum með öðrum á heimilinu og aðlaga valið að ólíkum þörfum svo sem ofnæmi eða séróskum. Þannig sparast tími og peningar ásamt því að dregið er úr matarsóun þegar aðeins er keypt það sem raunverulega þarf.

Vikumatseðill settur saman á einfaldan hátt með sjálfvirkum innkaupalista.
Hollara þarf ekki að þýða fullkomið
Stundum dettum við í þá hugsun að hollara mataræði þurfi að vera fullkomið. En þannig breytast venjur sjaldnast. Venjur breytast þegar lausnin er raunhæf og passar inn í lífið eins og það er. Gott og einfalt er fyrir fólk sem vill borða betur án þess að gera lífið flóknara.Við þurfum ekki að gera allt strax. Við þurfum bara að taka næsta skref.

Aldís og Jörgen hafa fundið nýjar og næringarríkar uppskriftir á vefnum.
Lýðheilsuverkefni í stöðugri þróun
Vefurinn Gott og einfalt er unninn af SÍBS og Krabbameinsfélagi Íslands í samstarfi við embætti landlæknis og með stuðningi Lýðheilsusjóðs. Uppskriftirnar fylgja nýjustu næringarviðmiðum og gera það einfaldara að borða hollari mat. Hluti uppskriftanna er þróaður innan verkefnisins en einnig er byggt á uppskriftum úr bókunum Af bestu lyst, sem Hjartavernd, Krabbameinsfélagið og Manneldisráð gáfu út á sínum tíma. Þá hafa íslenskir og erlendir uppskriftahöfundar lagt til efni og myndir og talsvert efni er fengið frá öðrum norrænum sjúklingafélögum. Þrátt fyrir ólíkan uppruna eiga uppskriftirnar það sameiginlegt að styðja við næringarríkt mataræði og taka mið af opinberum ráðleggingum. Vefurinn er í stöðugri þróun og mótast af endurgjöf notenda þannig að hann þjóni daglegu lífi fólks enn betur.
Lesa má fleiri greinar um næringu í SÍBS-blaðinu.