Fréttir / 14. janúar 2021

Hlaupanámskeið á Facebook

Hlaup eru einföld, ódýr og þægileg leið til að stunda hreyfingu sem bætir líkamlega og andlega heilsu til framtíðar segir Fríða Rún Þórðardóttir hlaupakona.

Í upphafi árs stendur SÍBS í fyrsta skipti fyrir “fjar”- hlaupanámskeiði í gegnum lokaðan hóp á Facebook. Námskeiðið er ókeypis og opið öllum, hvar á landi sem er. Áherslur á námskeiðinu miðast við byrjendur eða þá sem eru að hefja hlaup eftir hlé.

Hlaupaæfingar eru á ábyrgð þátttakenda sjálfra, þar sem hver og einn hleypur á sínum hraða en unnið er út frá einfaldri æfingaáætlun. Markmiðið er að þátttakendur byggi upp þol til að geta hlaupið í 30 mínútur án hvíldar.

Þjálfarar á námskeiðinu eru þær Fríða Rún Þórðardóttir og Ingunn Guðbrandsdóttir sem báðar hafa mikla reynslu af þjálfun á ýmsum vettvangi.

Námskeiðið hefst þriðjudaginn 26. janúar og stendur til loka mars. Nánari upplýsingar.

Skráning á námskeið.

Nýtt á vefnum