Fréttir / 11. janúar 2003

Dregið í fyrsta flokki á þriðjudag


Þriðjudaginn 14. janúar verður dregið í fyrsta flokki Happdrættis SÍBS 2003. Dregnir verða  m.a. út tíu vinningar, ein milljón krónur hver, auk fjölda annarra.

Opið er kl. 12:00 - 16:00 sunnudag 12.  og símavakt til kl. 21:30.

Mánudag 13. jan. er opið til kl. 18:00, símavakt til kl. 22:15.

Á þriðjudag er opið til kl. 18:00 en þá hefst útdráttur.

Við erum í Síðumúla 6 og síminn er 552 2150.

Aukalega verður svo dregin út tveggja stafa endatala en þeir sem eiga númer sem endar á þessum tölum hreppa stórglæsilega bókavinninga frá Eddu útgáfu. Nánar um þá hér að neðan.

Miða má panta hér á vefnum með netbréfi eða hringja í síma 552 2150.

Sérhver seldur miði styrkir starf okkar á Reykjalundi og Múlalundi.

Til að panta miða á vefnum er best að smella á \"Happdrætti SÍBS\" hér að ofan til vinstri og þá opnast reitur á sama stað þar sem stendur neðst \"Kaupa miða\". Með því að smella þar opnast eyðublað til útfyllingar.

Gangi ykkur vel og þökk fyrir stuðninginn.

Nýtt á vefnum