Fréttir / 2. febrúar 2003

Skipulagsbreytingar í Síðumúla 6


Frá 1. febrúar s.l. verða þær breytingar hjá SÍBS að Pétur Bjarnason, sem verið hefur framkvæmdastjóri stjórnar SÍBS ásamt því að fara með framkvæmdastjórn Happdrættis SÍBS, mun nú helga sig störfum fyrir happdrættið og verða áfram framkvæmdastjóri þess.

Helgi Hróðmarsson, sem verið hefur félagsmálafulltrúi SÍBS tekur við starfi framkvæmdastjóra stjórnar SÍBS frá sama tíma.

Þeir Helgi og Pétur munu eftir sem áður starfa sameiginlega að málefnum sambandsins þó áherslur breytist með þessum hætti.

Nýtt á vefnum