Fréttir / 21. júlí 2003

Dregið í 8. flokki 6. ágúst


Dregið verður í 8. flokki Happdrættis SÍBS miðvikudaginn 6. ágúst næstkomandi. Yfir 42 milljónir verða dregnar út, en hæsti vinningur er fjórar milljónir. Einnig er 500 þúsund króna vinningur og fimm 100 þúsund króna, auk þúsunda smærri vinninga.

Ekki má gleyma því að Íslensk orðabók og Ritsafn Snorra frá Eddu útgáfu hf. verður dregið út á endatölur samkvæmt venju.

Munið að endurnýja!

Svo er hægt að setja miðana á kreditkort með einu símtali í síma 552 2150 eða á [email protected]

Gætum varúðar í umferðinni. Góða ferð í fríið!

 

Nýtt á vefnum