Fréttir / 10. september 2004

Þing SÍBS 22.-23. október


Þing SÍBS verður haldið að Reykjalundi dagana 22.-23. október n.k.

SÍBS þing eru haldin á tveggja ára fresti, þau eru ígildi aðalfundar og þar er kosið í stjórnir og nefndir á vegum samtakanna.

Meiri breytinga er nú að vænta en oft áður þar sem Haukur Þórðarson hefur ákveðið að láta af formennsku í SÍBS sem hann hefur gegnt í meira en áratug.

Nánar verður fjallað um þingið þegar nær dregur.

 

Nýtt á vefnum