Fréttir / 31. janúar 2005

Happdrætti SÍBS -miðinn fæst í Hagkaupum


 Eins og frá var greint fyrir skömmu er nú hægt að kaupa miða í öllum verslunum Hagkaupa. Miðarnir prentast beint úr kassanum og gilda við næsta útdrátt. Þá er síðan hægt að endurnýja í umboðum SÍBS um allt land ef menn vilja halda númerinu, en það er líka hægt að kaupa nýtt númer í Hagkaupum eða umboðunum fyrir næsta útdrátt. Eða kannske bara hvort tveggja ...

Hvernig væri að prófa?

Miðinn kostar aðeins 900 krónur.

 

 

 

 

Nýtt á vefnum