Fréttir / 1. apríl 2005

Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur


 Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.

 

Styrkir eru veittir til öryrkja til hagnýts náms, bóklegs eða verklegs, svo og til náms í hvers konar listgreinum.

 

Einnig er heimilt að styrkja þá sem vilja hæfa  sig til starfa í þágu þroskaheftra.

 

Umsóknum skal skila til Öryrkjabandalags Íslands, Hátúni 10, Reykjavík fyrir 6. maí nk.

 

Allar nánari upplýsingar gefa:

Guðríður Ólafsdóttir í vinnusíma 530 6700

Arnþór Helgason í vinnusíma 530 6700.

 

Styrkjunum verður úthlutað 9. júní.

 

                                    Stjórn Námssjóðs

                                    Sigríðar Jónsdóttur.

 

Nýtt á vefnum