Fréttir / 7. september 2006

Stórsýning um heilsu og vellíðan


Dagana 7. - 11. þ.m. verður sýningin 3L EXPO í Egilshöll í Grafarvogi. Hundruð fagmanna hafa lagt nótt við dag að undanförnu til að undirbúa þessa risavöxnu sýningu.

SÍBS verður með bás á sýningunni og kynnir þar starfsemi sína, aðildarfélaga og stofnana, auk þess sem hægt verður að kaupa miða í Happdrætti SÍBS beint af vefnum og á sunnudeginum verða mælingar á blóðfitu, blóðþrýstingi og súrefnismettun. Heilbrigðisstarfsfólk á vegum Hjartaheilla og Samtaka lungnasjúklinga  munu annast þennan þátt.

 

Nýtt á vefnum