Fréttir / 19. febrúar 2007

Honda Jazz afhentur


Nýverið var Málhildi Angantýsdóttur afhent Honda Jazz bifreið sem hún vann í Happdrætti SÍBS. Á meðfylgjandi myndum sést þegar fulltrúi Happdrættis SÍBS, Kristín Þóra Sverrisdóttir afhendir Málhildi vinninginn ásamt blómvendi og síðan fær fulltrúi Bernhard ehf., Carl F. Skúlason henni lyklana að bílnum.

Málhildi eru færðar hamingjuóskir með vinninginn.

Fleiri geta átt von á glaðningi frá Happdrætti SÍBS á árinu því alls verða dregnir út 50 Honda Jazz til viðbótar á næstu mánuðum. Honda Jazz hefur stundum verið kallaður \"stærsti smábíllinn\", því innanrými er bæði mikið og haganlega fyrir komið. Þannig er hægt að leggja niður aftursætin og mynda slétt gólf allt að sætisbökum og þá minnir geymslurýmið aftur í mest á góðan skutbíl.

 

Nýtt á vefnum