Fréttir / 24. ágúst 2017

Who wants to live forever? - Hvernig vilt þú eldast?

Í dag lifa jarðarbúar tvöfalt lengur en fyrir 100 árum. Hins vegar eyða flest okkar síðustu 10-20 ár ævinnar við skerta heilsu vegna langvinnra sjúkdóma. Það er því mikilvægt verkefni einstaklinga og samfélagins að lengja þann tíma sem hver og einn lifir við góða heilsu. 

Í Háskólabíó þann 8. september verður haldin ráðstefna, “Who Wants To Live Forever" með þekktum alþjóðlegum fyrirlesurum þar sem þetta mál verður tekið fyrir. Að hversu miklu leyti hefur, hreyfing, mataræði, líkamsklukkan og jafnvel hugsanir, áhrif á heilsu og langlífi?  Að lokum verður rætt hvernig komandi kynslóðir geti lifað í sátt og samlyndi við lífríki jarðarinnar. 

 Dagana í kringum ráðstefnuna verða að auki haldin ýmis námskeið.  Professor Mark Cucuzzella, læknir og maraþonhlaupari, mun halda námskeið fyrir ráðstefnugesti sem vilja bæta hlaupastíl sinn og draga úr meiðslahættu, þeim að kostnaðarlausu. Þá mun Ben Greenfield, einn af þekktustum þjálfurum innan heilsu- og fitnessgeirans í Ameríku halda námskeið þar sem hjólað verður frá Nauthólsvík, í Heiðmörk og tilbaka.  Á leiðinni mun Ben fara yfir hvernig nota má ákveðnar líkamsæfingar og náttúruelementin til að hámarka árangur án þess að það komi niður á heilsunni.

Með í för verður einnig dr Tamsin Lewis, læknir og sigurvegari UK Ironman 2014.  Munu hún og Ben svara öllum mögulegum og ómögulegum spurningum sem þátttakendur kunna að hafa um hreyfingu og heilsu.

SÍBS er aðili að Icelandic Health Symposium (IHS) sem stendur fyrir ráðstefnunni.

Nýtt á vefnum