Fréttir / 27. mars 2017

Sjóður Odds Ólafssonar

Til úthlutunar eru styrkir úr sjóði Odds Ólafssonar til:

(a) Rannsókna á fötlun og fræðslu um hana, og

(b) rannsóknarverkefna á sviði öndunarfærasjúkdóma og fræðslu um þá.

Styrkfjárhæðir nema 100–300 þúsund krónum á hvert verkefni sem valið verður. 

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2017. Úthlutað verður úr sjóðnum á fæðingardegi Odds Ólafssonar, fyrsta yfirlæknis á Reykjalundi, þann 26. apríl 2017. Umsóknir sendist á netfangið [email protected].

Nýtt á vefnum