Fréttir / 30. nóvember 2016

Næringarmeðferð einstaklinga með sykursýki af tegund 2

Fræðilegur bakgrunnur leiðbeininga fyrir næringarmeðferð einstaklinga með sykursýki af tegund 2 er komin út og er vistaður á heimasíðu Rannsóknarstofu í næringarfræði. Samantektin byggir á erlendum leiðbeiningum frá Evrópu, Ástralíu og Bandaríkjunum en tekið hefur verið tillit til íslenskra aðstæðna þar sem við á, sem og niðurstaðna vinnustofu sem haldin var á Háskólatorgi Háskóla Íslands 7. apríl 2016 og athugasemda sem bárust í kjölfarið.

Samantektin er fræðilegt yfirlit og stuðningur fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir næringarmeðferð einstaklinga með sykursýki af tegund 2.

Vinnuhópinn sem vann að leiðbeiningunum skipa: Bertha María Ársælsdóttir, Bryndís Eva Birgisdóttir og Óla Kallý Magnúsdóttir. Unnið var í samstarfi við Hörð Björnsson, Rafn Benediktsson, Rut Gunnarsdóttur og Tómas Þór Ágústsson.

Nýtt á vefnum