Fréttir / 8. nóvember 2016

Ókeypis heilsufarsmælingar á Vesturlandi

Íbúum Vesturlands er boðið upp á ókeypis heilsufarsmælingu, SÍBS og Hjartaheilla, miðvikudaginn 9. nóvember í Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum Akranesi kl. 17–20 og fimmtudaginn 10. nóvember í Íþróttamiðstöðinni Þorsteinsgötu Borgarnesi kl. 17-20.

Sérstaklega velkomnir eru þeir sem ekki þekkja gildin sín. Mældur er blóðþrýstingur, blóðfita, blóðsykur og súrefnismettun. Að auki gefst kostur á að taka þátt í könnun SÍBS "Líf og heilsa", sem getur bætt skilning okkar á hvað megi gera til að draga úr sjúkdómum.

Nýtt á vefnum