Fréttir / 8. apríl 2016

Taktu þátt í 100 km áskorun SÍBS og Vesens og vergangs!

Áskorunin felst í því að þátttakendur stefna að því að ganga 100 km á 28 dögum frá 6. apríl til 4. maí. Það er nóg að ganga 3,6 km á dag til að standast áskorunina. Sumir vilja ganga á jafnsléttu á meðan aðrir vilja ganga á fjöll. Þetta er ekki keppni á milli fólks eða liða, þetta er áskorun fyrir sjálfan þig og tækifæri fyrir aðra til að hvetja þig áfram.  

Þátttakendur eru hvattir til að vera virkir á vegg viðburðarins á Facebook og láta vita um afrakstur dagsins, hvort sem það var í skipulegri hópgöngu, með vinum eða á eigin vegum. Þá má gjarnan segja frá líðan á meðan á göngunni stóð og eftir gönguna auk vegalengdar og annars sem þér finnst skemmtilegt að deila með öðrum. 

Skipulögðu göngurnar verða bæði styttri kvöldgöngur á virkum dögum í og við höfuðborgarsvæðið og lengri helgargöngur á Suður- og Vesturlandi. Markmið áskorunarinnar er að fólk geri göngur að daglegri venju, eflist að líkamlegum og andlegum styrk og kynnist skemmtilegu fólki á sama tíma. 

Vertu með!

Nýtt á vefnum