Fréttir / 10. apríl 2015

Fyrirlestur um hreyfingu

Ingibjörg H. Jónsdóttir heldur fyrirlestur um mikilvægi hreyfingar fyrir heilsuna í Gullteigi á Grand Hóteli laugardaginn 17. janúar kl. 11:00. Ingibjörg er prófessor í hreyfingu og heilsu við Gautaborgarháskóla og forstöðumaður Streiturannsóknarstofnunar Gautaborgar.

Að loknum fyrirlestri Ingibjargar mun Auður Ólafsdóttir sjúkraþjálfari fjalla um virkni hreyfiseðla á Íslandi.

Fyrirlesturinn er öllum opinn og ókeypis en fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því er nauðsynlegt að skrá þátttöku á www.parkinson.is eða í síma 552-4440. Skráningu lýkur fimmtudaginn 15. janúar.

Léttar veitingar í boði Parkinsonsamtakanna á Íslandi.

Nýtt á vefnum