Fréttir / 4. nóvember 2014

Frí mæling á blóðgildum 8. og 9. nóvember

Hjartaheill og SÍBS bjóða öllum þeim sem vilja að koma í ókeypis mælingu á blóðþrýstingi, blóðsykri, blóðfitu og súrefnismettun, helgina 8. og 9. nóvember í SÍBS-húsinu, Síðumúla 6. Hjúkrunarfræðinemar við Háskóla Íslands munu framkvæma mælingarnar. Þeir sem aldrei hafa látið mæla gildi sín ættu sérstaklega að stökkva á þetta tækifæri. Á síðasta ári mættu ríflega 700 manns í mælingar og reyndust um 60% þeirra voru með of háan blóðþrýst­ing. Þar af mældust 43 einstaklingar á hættusvæði og var í kjölfarið bent á að snúa sér til læknis.

„Hjarta og æðasjúkdómar eru algengasta orsök dauðsfalla og ótímabærs heilsubrests á Vesturlöndum“ segir Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS og bætir við. „Lífstílssjúkdómar eru að verða heilsufarsvandi númer eitt. Þeir eiga þó það sameiginlegt að þá má að hluta til fyrirbyggja með hollu mataræði. Ég hvet alla sem eru komnir yfir fertugt til þess að koma og fá að vita hver staðan er hjá þeim. Þetta er ekki eitthvað sem er gott að vita, það getur beinlínis verið lífsnauðsynlegt.“

Opið er frá kl. 10 – 16 bæði laugardag og sunnudag. Ekki verður hægt að panta tíma í mælingu fyrirfram, aðeins hægt að koma á staðinn og taka númer. Fólk er því hvatt til þess að mæta snemma.

Skoða viðburð á Facebook 

Nýtt á vefnum