Fréttir / 13. desember 2013

Vinningaskrá Happdrættis SÍBS 2014

Vinningaskrá Happdrættis SÍBS árið 2014 verður sú veglegasta hingað til. Alls verða dregnir út yfir 20 þúsund vinningar að verðmæti yfir 600 milljónir króna – yfir 50 milljónir á mánuði. Mánaðarlega verður dreginn út Nissan Leaf rafbíll að verðmæti 5 milljónir króna. Heppinn SÍBS-vinur þarf því ekki að kaupa bensín framar og leggur um leið sitt af mörkum til umhverfisins.

Miðaeigendur í Happdrætti SÍBS eiga það sameiginlegt að styðja endurhæfingar- og forvarnastarf með þátttöku sinni. Við kunnum traustum SÍBS-vinum innilegar þakkir fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða og óskum þeim og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Vinningaskrána 2014 má skoða hér. Miðaverð er 1300 krónur á mánuði. Ef þú vilt láta gott af þér leiða á nýju ári, leggðu okkur lið og veldu vinanúmer og vertu með frá fyrsta útdrætti 16. janúar!

Nýtt á vefnum