Fréttir / 18. september 2013

Sigur lífsins – SÍBS í 75 ár

Í október á SÍBS 75 ára afmæli og í tilefni þess kemur út bókin "Sigur lífsins – SÍBS í 75 ár". Saga þessi spannar drjúgan hluta heilbrigðissögu íslensku þjóðarinnar, en byrjar vitaskuld á baráttunni við berklana – hvíta dauðann – sem herjaði á landsmenn fram eftir síðustu öld.

Rakin er 75 ára vegferð samtakanna með tilkomu Reykjalundar, Happdrættis SÍBS, Múlalundar, Öryrkjabandalags Íslands, HL-stöðvanna og fleiri stofnana sem SÍBS hefur átt þátt í að stofna. Þá er rakin saga aðildarfélaganna, allt frá berkladeildunum gömlu að þeim félögum sem eru innan SÍBS í dag og spanna vítt svið.

Bókin er yfir 400 bls. að stærð, aðgengilega uppsett, ríkulega myndskreytt og með fjölda rammagreina um sérstök og stundum skondin atriði í sögunni. Höfundur bókarinnar er Pétur Bjarnason, sem á að baki áralangt starf með SÍBS. Myndaritstjórn sinnti Jóhannes Long ljósmyndari, sem einnig hefur fylgt samtökunum í gegnum árin.

Bókina má panta í forsölu, og er verð hennar kr. 11.900 auk sendingargjalds kr. 1000, en einnig má sækja bókina á skrifstofu SÍBS frá og með afmælisdeginum 24. október. Til að panta bókina má hringja í 560 4800 eða senda tölvupóst á [email protected]. Sýnishorn úr bókinni má sjá hér.

Nýtt á vefnum