Greinar

Frá ráðleggingum á diskinn

Gunnhildur Sveinsdóttir

Greinin birtist fyrst í SÍBS-blaðinu 3/2026, sem var helgað bætiefnum og áhrifum þeirra á heilsu.

Kynningarmynd fyrir matarvefinn Gott og einfalt sem sýnir skál með girnilegri súpu, límónubáta og ferskt grænmeti.
Á Gott og einfalt má finna fjölbreyttar, hollar og einfaldar uppskriftir sem byggja á ráðleggingum um mataræði.

Í flestum tilvikum er fjölbreytt og næringarríkt mataræði besta leiðin til að tryggja að líkaminn fái öll nauðsynleg næringarefni. Það getur hins vegar verið flókið að brúa bilið frá opinberum ráðleggingum um mataræði yfir á diskinn. Matarvefurinn Gott og einfalt inniheldur aðeins uppskriftir sem uppfylla opinber næringarviðmið og auðveldar notendum að hrinda hollustunni í framkvæmd.

Maturinn sem við borðum gefur okkur ekki aðeins orku heldur einnig prótein, trefjar, vítamín, steinefni og fjölmörg önnur efni sem eru mikilvæg fyrir heilsuna. Þótt bætiefni geti verið nauðsynleg við ákveðnar aðstæður koma þau almennt ekki í stað fjölbreytts mataræðis.

Hollt mataræði þarf ekki að vera flókið

Kynningarmynd fyrir matarvefinn Gott og einfalt með skjámynd af uppskriftum og yfirskriftinni „Bragðgóðar, hollar og einfaldar uppskriftir“.
Matarvefurinn Gott og einfalt auðveldar fólki að fylgja ráðleggingum um hollt mataræði með fjölbreyttum, næringarríkum og einföldum uppskriftum.

Þótt ráðleggingarnar byggi á vísindalegri þekkingu er ekki alltaf augljóst hvernig best er að fylgja þeim. Hvað á að hafa í matinn? Hvernig má auka neyslu grænmetis og heilkorns eða velja hollari kosti án þess að flækja matargerðina? Gott og einfalt hjálpar fólki að svara þessum spurningum með uppskriftum sem auðvelt er að nýta við daglega eldamennsku.

Á vefnum er áhersla lögð á grænmeti, ávexti, heilkorn, trefjaríka fæðu og góða próteingjafa, auk þess sem leitast er við að takmarka salt og viðbættan sykur. Þannig geta notendur valið úr fjölda uppskrifta án þess að þurfa sjálfir að meta næringarinnihald hverrar máltíðar.

Með því að velja úr ólíkum uppskriftum á vefnum og borða í samræmi við eigin orkuþörf ættum við almennt að geta uppfyllt næringarþarfir líkamans að undanskildum þeim næringarefnum, einna helst D-vítamíni, sem sérstaklega er ráðlagt að taka sem bætiefni. Það er heildarsamsetning fæðunnar yfir lengri tíma sem skiptir mestu máli, fremur en næringarinnihald einstakra máltíða.

Á vefnum má einnig setja saman eigin vikumatseðla, útbúa innkaupalista og finna hagnýt ráð sem auðvelda skipulag og eldamennsku. Með góðu skipulagi verður auðveldara að nýta hráefni, spara tíma og draga úr óþarfa innkaupum. Þannig verður einfaldara að breyta góðum áformum í daglegar venjur.

Gott og einfalt er samstarfsverkefni SÍBS og Krabbameinsfélags Íslands, unnið í samvinnu við embætti landlæknis.

Kíkið á gottogeinfalt.is og sjáið hversu auðvelt það getur verið að borða hollan, fjölbreyttan og góðan mat.


Gunnhildur Sveinsdóttir

Hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur, verkefnisstjóri hjá SÍBS