test

10ág.
SÍBS Líf og heilsa á Grímsævintýrum
10. ágúst 2019, kl. 13:00 – kl. 16:00
Borg, stjórnsýsluhús Gríms- og grafningshrepps (2. hæð)

SÍBS Líf og heilsa mun í samstarfi við Kenfélag Grímsneshrepps bjóða upp á ókeypis heilsufarsmælingar í stjórnsýsluhúsi Gríms- og grafningshrepps á Borg (2. hæð) í tilefni Grímsævintýra þann 10. ágúst 2019 kl. 13-16.

SÍBS Líf og heilsa er forvarnaverkefni um heilbrigði og lífsstíl þar sem SÍBS ásamt Samtökum sykursjúkra, Hjartaheill og Samtökum lungnasjúklinga bjóða almenningi ókeypis heilsufarsmælingu. Mælingarnar eru hluti af hringferðum SÍBS Líf og heilsa um landið þar sem þúsundir hafa þegið ókeypis mælingu. Mældur er blóðþrýstingur, blóðfita, blóðsykur, súrefnismettun og fleira, auk þess sem þátttakendum er boðið að taka þátt í könnun um lífsstíl og heilsufar sem snertir á flestum áhrifaþáttum heilbrigðs lífs.