test

19mars
HAM við krónískum verkjum
19. mars 2019 – 23. apríl 2019, kl. 16:00 – kl. 18:00
Reykjalundur, mæta tímalega í móttöku

Lýsing: Á námskeiðinu er unnið þverfaglega með verki og koma ýmsir faghópar að tímunum, allir starfandi á verkjasviði Reykjalundur. Hugræn atferlismeðferð er rauði þráðurinn í námskeiðinu en einnig er unnið með lífsstílsbreytingar til að rjúfa vítahring verkja með áherslu á bætta andlega líðan.

Yfirumsjón með námskeiðinu hafa þau Rúnar Helgi Andrason sálfræðingur og Þóra Hjartardóttir hjúkrunarfræðingur á Reykjalundi.

Námskeiðið er ætlað einstaklingum með skerta getu og minnkuð lífsgæði vegna stoðkerfisverkja.

Verð: 48.900 kr. og 3000 kr. afsláttur fyrir félagsmenn aðildarfélaga SÍBS og ÖBÍ.