test

22jan.
HAM við krónískum verkjum
22. janúar 2019 – 26. febrúar 2019, kl. 16:00 – kl. 18:00
Reykjalundur, mæta tímalega í móttöku

Verð: 48.900 kr. og 3.000 kr. afsláttur fyrir félagsmenn aðildarfélaga SÍBS og ÖBÍ.

Staður og stund: Reykjalundur, Mosfellsbæ. á þriðjudögum 22. janúar til 26. febrúar. kl. 16-18

Lýsing: Á námskeiðinu er unnið þverfaglega með verki og koma ýmsir faghópar að tímunum, allir starfandi á verkjasviði Reykjalundur. Hugræn atferlismeðferð er rauði þráðurinn í námskeiðinu en einnig er unnið með lífsstílsbreytingar til að rjúfa vítahring verkja með áherslu á bætta andlega líðan.

Námskeiðið er ætlað einstaklingum með skerta getu og minnkuð lífsgæði vegna stoðkerfisverkja.

Yfirumsjón með námskeiðinu eru Rúnar Helgi Andrason sálfræðingur og Þóra Hjartardóttir hjúkrunarfræðingur á Reykjalundi.