test

05júní
Geldinganeshringur - 150 km áskorun
5. júní 2019, kl. 18:15 – kl. 20:15
Bílastæði við Vættaskóla að Vættaborgum

Við komum saman á bílastæðinu við Vættaskóla að Vættaborgum og göngum þaðan niður að eiðinu og yfir á Geldinganes. Þar tökum við góðan hring meðfram sjávarsíðunni mestanpart en síðasti hlutinn er tekinn á vegi. Gengið er á grónu landi og þýfðu á köflum, en þó hafa myndast slóðar lengst af. Einnig er gengið á malarvegi og á göngustígum frá skólanum. Við getum átt von á frísku sjávarlofti, miklu fuglalífi og fallegu sjónarhorni á umhverfið, sérstaklega á Esjuna. Vegalengd er 8-9 km og uppsöfnuð hækkun ca 50 m.

Gangan er hluti af 150 km áskorun SÍBS og Vesens og vergangs. Áskorunin felst í því að þátttakendur stefna að því að ganga 150 km alls dagana 1. maí til 15. júní (báðir meðtaldir). Það er nóg að ganga 3,3 km á dag til að standast áskorunina. Sumir vilja ganga á jafnsléttu á meðan aðrir vilja ganga á fjöll. Þetta er ekki keppni á milli fólks eða liða, þetta er áskorun fyrir sjálfan þig og tækifæri fyrir aðra til að hvetja þig áfram. Nánari upplýsingar um 150 km áskorunina á Facebook.