test

01maí
150 km áskorun SÍBS
1. maí 2019 – 15. júní 2019

Taktu þátt í 150 km áskorun SÍBS og Vesens og vergangs!

Hún felst í því að þátttakendur stefna að því að ganga 150 km alls dagana 1. maí til 15. júní (báðir meðtaldir). Það er nóg að ganga 3,3 km á dag til að standast áskorunina. Sumir vilja ganga á jafnsléttu á meðan aðrir vilja ganga á fjöll. Þetta er ekki keppni á milli fólks eða liða, þetta er áskorun fyrir sjálfan þig og tækifæri fyrir aðra til að hvetja þig áfram.

Hægt er að blanda saman mismunandi tegundum hreyfingar. 150 km göngur samsvara:

  • 150 km hlaupum
  • 37,5 km sundi
  • 600 km hjólreiðum

Þátttakendur eru hvattir til að vera virkir á vegg viðburðarins og láta vita um afrakstur dagsins, hvort sem það var í skipulegri hópgöngu, með vinum eða á eigin vegum. Þá má gjarnan segja frá líðan á meðan á göngunni stóð og eftir gönguna auk vegalengdar og annars sem þér finnst skemmtilegt að deila. Þeir sem nota Strava eru hvattir til að leita uppi Vesen og vergang þar og skrá sig í hópinn.

Bæði verða þetta styttri kvöldgöngur á virkum dögum í og við höfuðborgarsvæðið og lengri helgargöngur.

Markmið áskorunarinnar er að fólk geri göngur að daglegri venju, eflist að líkamlegum og andlegum styrk og kynnist skemmtilegu fólki á sama tíma.

Vertu með!